Lionsþing haldið í Hveragerði - breytt dagsetning

Lionsklúbbur Hveragerðis bauð til þings vorið 2022. Samkvæmt áætlun klúbbsins skyldi halda þing 13. og 14. maí 2022 en síðan breyttist landslagið í stjórnmálum landsins og ákveðið var að nota þessa helgi undir kosningar til sveitarstjórna lýðveldisins.
Undirbúningsnefnd Lionsþings 2022, í samráði við yfirstjórn Lions, hafa því ákveðið að færa þingið fram um eina helgi til 6. og 7. maí 2022.