Dagskrá þingins

69. þing Lions umdæmis 109 verður haldið á Álftanesi dagana 10. og 11 maí 2024.

Bessastadir

Dagskrá:

Fimmtudagur  9. maí  
19:00 - 21:00     Skráning og afhending þinggagna: Íþróttamiðstöðin Álftanesi

Föstudagur  10. maí      
08:00 - 10:30    Skráning og afhending þinggagna: Íþróttamiðstöðin Álftanesi
09:00 - 12:30    Skólar embættismanna, formanna, ritara, gjaldkera og svæðisstjóra
11:00 - 12:00    Að vera maki Lionsfélaga, námskeið fyrir maka
12:00 - 13:00    Hádegisverður
13:10 - 13:20    Safnast saman fyrir framan þingstað. (Munið eftir stóru klúbbfánunum)
13:30 - 14:00    Skrúðganga leggur af stað. Myndataka að lokinni skrúðgöngu
14:15 - 15:15    Þingsetning í Íþróttamiðstöð
15:30 - 16:00    Kaffihlé
16:00 - 18:30    Umdæmisþingi A-umdæmis 109  framhaldið
16:00 - 18:30    Umdæmisþingi B-umdæmis 109  framhaldið
20:00 - 23:00    Kynningarkvöld í Íþróttamiðstöðinni Álftanesi. Þar ætlum við að hittast og gera okkur glaðan dag, njóta tónlistar í umsjá Didda "Trúbó". Léttar veitingar s.s. miniborgarar, tortillarúllur með skinku og osti, Nachos, salsa og ídýfur, grænmetisstönglar, Voga dýfur, kínarúllur, minipizzur og pastasalat.

Laugardagur 11. maí  
09:00 - 10:00     Skráning og afhending þinggagna: Íþróttamiðstöðin Álftanesi
10:00 - 12:00     Fjölumdæmisþingi framhaldið
12:00 - 13:00     Hádegisverður
13:00 - 13:30     Kynning á verkefnum
13:30 - 16:00     Makaferð
13:30 - 15:00     Fjölumdæmisþingi framhaldið
15:00 - 15:10     Kaffihlé
15:10 - 16:30     Fjölumdæmisþingi framhaldið
19:30 - 01:00     Lionshátíð í Íþróttamiðstöðinni Álftnesi. Þriggja rétta kvöldverður, rækjukokteill, fylltar kalkúnabringur og            Tiramisu. Dinnermúsik og veislustjórn í höndum Davíðs og Stefáns óperusöngvara og Helga píanóleikara. Dansleikur þar sem stuðbandið “Allt íeinu” mun leika fyrir dansi.

Vonandi sjáumst við sem flest á Lionsþinginu.

Félagar í Lionsklúbbi Álftaness hlakka til að taka á móti okkur.

Þingnefnd: Hörður Sigurjónsson þing- of protocolstjóri MD109
                   Jón Pálmason D109A
                   Sigríður Guðmundsdóttir D109B

Lionssöngurinn:

Þeir gleðjast æ, sem góðum málstað þjóna,
hver göfug hugsjón tengir vinabönd.
Og það er takmark allra landsins ljóna
að líkna sjúkum, rétta hjálparhönd.
Og týnum aldrei trú á máttinn hljóða
en tendrum ljós svo myrkrið víki á braut.
Það yrði farsælt framlag allra þjóða
í friði og eining leysa hverja þraut.

(Ljóð: Aðalheiður Þórarinsdóttir, Lag: Litla flugan, Sigfús Halldórsson)

(Gunnar Ásgeirsson færði hreyfingunni lagið í nafni klúbbfélaga síns í Lkl.Ægi, Sigfúsar Halldórssonar á fjölumdæmisþingi árið 1977 þegar Gunnar varð umdæmisstjóri.  Sigfús Halldórsson hafði þá samið lag við ljóðið. Aðalheiður var frá Ytra Ósi við Hólmavík, en maður hennar Magnús Gunnlaugsson var í Lkl. Hólmavíkur og sá klúbbur hafði sungið lagið á klúbbfundum undir laginu "Hvað er svo glatt". heimild: úr bók Svavars Gestssonar af bls.278 og 279)