Vinningashafinn í Friðarveggspjaldakeppni Lions á Íslandi er Bjartey Ósk Sæþórsdóttir nemandi í 7. bekk Grunnskóla Vestmannaeyja.

Vinningsmynd í Friðarveggspjaldakeppni MD109 2021-22
Vinningsmynd í Friðarveggspjaldakeppni MD109 2021-22

Kæru Lionsfélagar.

Þá eru komnar niðurstöður í Friðarveggspjaldakeppni Lions á Íslandi þetta starfsárið.

Vinningshafinn er Bjartey Ósk Sæþórsdóttir nemandi í 7. bekk Grunnskóla Vestmannaeyja.

Félagar í Lionsklúbbi Vestmannaeyja hafa tilkynnt henni og foreldum hennar það og munu þeir fara í skólann og afhenda viðurkenningarskjöl og verðlaun þegar færi gefst, vonandi í janúar.

Dómnefndin var sammála um að Emma Sif Brynjarsdóttir í Sæmundarskóla ætti skilið viðurkenningu og 2. sæti á landsvísu. Félagar í Lkl. Fold hafa tilkynnt henni það og farið í heimsókn í skólann og veitt viðurkenningar.

Slóð á mynd Emmu sem lenti í 2.sæti

16 skólar og jafnmargir klúbbar víðsvegar af landinu tóku þátt.  Voru klúbbar í þeim sveitafélögum umsjónarmenn verkefnisins og voru í sambandi við skólana. Hver klúbbur valdi vinningsmynd frá sínum skóla og sá um að senda hana til Lionsskrifstofunnar í lokakeppnina. Einnig hafa þeir veitt þátttakendum og skólunum viðurkenningarskjöl keppninnar.

Dómnefndin sem dæmdi fyrir MD109 (Ísland) var skipuð 5 einstaklingum bæði fagmönnum og leikmönnum.

Umsjón með verkefninu höfðu:

Hrund Hjaltadóttir Lkl. Fold - GST verkefnafulltrúi 109B

Jórunn Guðmundsdóttir Lkl. Ýr - Lestrarátaks- og Friðarveggspjaldafulltrúi 109A