Ekki missa af neinu hjá Lions og skráðu netfangið þitt á póstlistann.
Fylgdu okkur á facebook
- Styrkja LCIF
- Um Lions
- Klúbbar
- Verkefni
- Minningar
- Lionsbúðin
- Fræðsla
- Lionssalurinn
Lions er með ýmis verkefni á sinni könnu og hvatt er til að sinna börnum og ungmennum innan hvers flokks.
Verkefni fyrir börn og ungmenni hafa forvarnargildi, eru fjárfesting til framtíðar og eins og norskir Lions félagar segja: ,,Það er betra að byggja upp börn en að laga þá fullorðnu“.
LCI Youth Programs eru alþjóðleg Lions verkefni fyrir börn og ungmenni. Allir alþjóðaforsetar leggja mikla áherslu á þau og hvetja til frekari dáða. Ungmennaverkefni Lions njóta virðingar stofnana eins og Sameinuðu þjóðanna og öflug fjölþjóðleg fyrirtæki hafa valið þau til að búa til betri heim (stutt fjárhagslega eða fléttað í sín verkefni).
Ungmennaskipti / ungmennabúðir
Ungmennaskipti er eitt af flaggskipum Lions
Markmið: Að efla alþjóðlegan skilning og velvilja og vinna að markmiðum heimsfriðar. Að kynna mismunandi sjónarmið, siði og menningu. Hvetja ungt fólk til að virða hugsanir og skoðanir annarra. Gefa ungu fólki frá mismunandi löndum tækifæri til að kynnast og komast í samband hvert við annað. Þróa leiðtogahæfileika og hópastarf. Bjóða upp á fjölbreytt starf sem stuðlar að heilbrigðri upplifun.
Ungmennabúðir - Youth Camps and Exchange (YCE) bjóða upp á verkefni um allan heim og eru hönnuð fyrir ungt fólk á aldrinum 15 til 22 ára til að skapa og efla skilning meðal fólks um allan heim.
Með því að bjóða upp á leið til alþjóðlegs félagsskapar miðar YCE-áætlunin að því að hjálpa ungmennum að hefja, efla og viðhalda alþjóðlegum samskiptum sem stuðla að menningarlegri menntun og alþjóðlegum friði.
En við tökum ekki aðeins á móti ungmennum, við sendum líka ungmenni erlendis í aðrar búðir. Það sem oft má gera betur hér á landi, er að velja ungmenni sem send eru frá Íslandi. Lionsklúbbar eða svæði vita ekki alltaf hvað felst í þessu tækifæri og kynna það stundum ekki rétt og vanda sig ekki alltaf við valið á ungmennum til að senda. Þetta má laga. Engu að síður koma þessi ungmenni heim með nýja sýn og reynslu, hafa lært og þroskast.
Val á þátttakendum í ungmennabúðum
Hægt er að velja umsækjendur með einhverri af eftirfarandi aðferðum:
a. Í gegnum skipulagðar keppnir
b Eftir tilnefningu frá skóla eða samfélagsstofnun.
c. Að fengnum tillögum frá Lions félögum.
Á Íslandi er nú í fyrsta skiptið sleppt að hafa heimagistingu og aðeins er um ungmennabúðir að ræða.
Árið 2025 eru það Lionsklúbburinn Freyja, Keflavík, Lionsklúbburinn Æsa, Njarðvík og Lionsklúbbur Njarðvíkur á svæði 5 í umdæmi 109 A sem sjá um búðirnar með aðstoð annarra klúbba á svæðinu.