Ekki missa af neinu hjá Lions og skráðu netfangið þitt á póstlistann.
Fylgdu okkur á facebook
- Styrkja LCIF
- Um Lions
- Klúbbar
- Verkefni
- Minningar
- Lionsbúðin
- Fræðsla
- Lionssalurinn
- Lionsþing 2026
Umhverfisvika Lions verður haldin dagana 18.–26. apríl 2026 og eru Lionsklúbbar hvattir til að taka virkan þátt í átakinu. Norðurlöndin hafa ákveðið að taka áskorun A.P. Singh, Alþjóðaforseta Lions, og hvetja klúbba til að leggja sitt af mörkum til að bæta nærumhverfið.
Við hvetjum klúbba til að skipuleggja hreinsunardag á tímabilinu. Víða má sjá rusl sem hefur safnast í trjám við girðingar meðfram vegum, á túnum, við læki og vötn, auk þess sem rusl er oft að finna meðfram göngustígum og við verslanir og stórmarkaði. Hver klúbbur þekkir sitt nærumhverfi best og getur lagt sitt af mörkum þar sem þörfin er mest.
Lionsfélagar eru hvattir til að taka höndum saman, fá fleiri til liðs við sig og vera sýnilegir í starfi sínu, meðal annars með því að klæðast gulu Lionsvestunum. Skemmtilegt getur verið að enda hreinsunardag með samveru, til dæmis yfir heitu súkkulaði. Einnig er hvatt til að taka myndir af verkefnunum og segja frá starfinu.
Ef ekki reynist mögulegt að halda hreinsunardag er bent á aðrar leiðir til að stuðla að umhverfisvitund, til dæmis með því að taka til í skápum og koma gömlum fötum eða öðrum nýtilegum hlutum í endurnýtingu. Á mörgum heimilum leynast einnig garnafgangar og annað efni sem getur nýst öðrum.
Meðfylgjandi er skemmtilegur leikur sem vekur vonandi áhuga okkar Lionsfélagana til umhverfis MEÐvitundar.
Kveðja góð frá umhverfisnefnd.