Styrktartónleikar Lionsklúbbs Hveragerðis

Tónleikar voru haldnir í Hveragerðiskirkju kvöldið 06.11. 2013 þar sem fram komu Magnús Þór Sigmundsson og Fjallabræður. Þema kvöldsins var lög og ljóð Magnúsar Þórs. Full var kirkjan af góðum gestum. Mikið fjör og mikið stuð spannst og fóru allir ánægðir á braut.
Lkl. Hveragerðis stóð fyrir tónleikum þessum og allir sem að tónleikunum stóðu, gáfu vinnu sína en verið var að safna fyrir hjartastuðtækjum í Íþróttahús og íþróttahöll bæjarins.

Hverag_tonleikar-1
Fjöldi gesta var mættur

Hverag_tonleikar-2
Magnús Þór Sigmundsson og félagar

Hverag_tonleikar-3
Fjallabræður

Plakat-2013