Lkl. Suðri í Vík færir heilsugæslunni tvær lífsmarksstöðvar.

Lkl. Suðri Vík færir Heilsugæslunni tvær lífsmarksstöðvar
Lkl. Suðri Vík færir Heilsugæslunni tvær lífsmarksstöðvar

Lionsklúbburin Suðri var stofnaður 1968 og verður því 50 ára á næsta ári..

Félagar eru núna 25 og hefur fjölgað um 7 á síðustu 2 árum, eða um 38% og geri aðrir betur.

Starfsemi klúbbsins og fjáröflunar leiðir hafa lengi verið í föstum skorðum.

Fundir eru haldnir tvisvar í mánuði frá september til maí loka.  Leitast hefur verið við að fá frammámenn og frumkvöðla í atvinnulífinu, á svæðinu, á  þessa fundi,  til þess að segja frá  og upplýsa okkur um sín verkefni.

Árlega  hefur Klúbburinn, ásamt hópferðabílum Suðurlands, boðið eldri borgurum í dagsferðir með tilheyrandi veitingum.

Þá hafa félagarnir í fjölda ára haft það að markmiði að græða upp moldar- rof og  gróðurlaust land, með sáningu grasfræs og áburðargjöf á hverju ári..

Þá hefur klúbburinn, eins og fleiri Lions klúbbar víðsvegar um landið, staðið fyrir árlegum blóðsykursmælingum.

Fastar fjáröflunarleiðir hafa verið pökkun og sala sælgætis fyrir hver jól. Svo og árleg útgáfa almanaks.

Klúbburinn hefur leitast við að styrkja ýmiss líknar- og heilbrigðismál í héraðinu. Sérstaklega með ýmsum tækjagjöfum til Heilsugæslunnar.  Eru þau ófá tækin sem hann hefur gefið til heilsugæslustöðvarinnar í Vík á starfsárum sínum, ýmist einn eða með kvenfélagi hreppsins.

Sérfræðingar á ýmsum lækningasviðum hafa komið hingað og nýtt sér tækin og sparað þannig heimafólki margar Reykjavíkurferðirnar.

Fyrir nokkrum dögum afhenti klúbburinn  heilsugæslunni í Vík  tvær lífsmarkastöðvar, sem nýtast einstaklega vel í daglegu starfi á heilsugæslustöðinni. Með stöðvunum er á einfaldan og öruggan hátt hægt að mæla púlshraða, blóðþrýsting, líkamshita og súrefnismettun í blóði.