Lkl. Hveragerðis gefur litabækur um brunavarnir.

Lionsklúbbur Hveragerðis gefur árlega fyrstu bekkingum Grunnskóla Hveragerðis Litabækur um brunavarnir.
Að þessu sinni var það Axel Wolfram formaður klúbbsins starfsárið 2013-2014 sem afhenti grunnskólabörnunum bækurnar. Snorri Baldursson (fyrrverandi slökkviliðsstjóri slökkviliðs Hveragerðis) kynnti svo börnum fjögurra bekkja innihald bókarinnar.
Markmiðið með bók þessari er að gera grunnskólabörn að brunavörðum heimilanna. Frá upphafi hafa hin ýmsu tryggingarfélög og fyrirtæki sem selja öryggistæki vegna bruna styrkt útgáfuna og kennarar og slökkviliðsstjórar hafa talið hana vera mjög vel til þess fallna að vekja athygli barna á réttum viðbrögðum varðandi brunavarnir.

Axel afhendir börnunum litabækurnar