Lkl. Hveragerðis afhendir félögum sínum Melvin Jones viðurkenningar

Þriðjudaginn 20.05.2014 fór fram formlega afhending Melvin Jones viðurkenningar en það voru Sigurður Sigurdórsson og Örn Guðjónsson sem hana hlutu. Er þetta æðsta viðurkenning Lionshreyfingarinnar og er veitt fyrir mikið og fórnfúst starf í þágu hennar. 12 félagar í Lkl. Hveragerðis voru viðstaddir athöfn þessa, sem og einn gestur. Okkur í klúbbnum telst til að Melvin Jones félagar okkar séu orðnir 10 talsins.

Hveragerdi_3540_vkMynd 1: Fossflöt Hveragerði 20.05.14. Formleg afhending Melvin Jones viðurkenningarinnar. Hér eru Sigurður Sigurdórsson (t.h) og Örn Guðjónsson (t.v) með plattana.

Hveragerdi_3543_vkMynd 2; Hópmynd af félögunum 12 - ljósmyndarann vantar eðlilega á myndina.