Lionsklúbburinn Ösp Akureyri á "Norðlenskri hönnun og handverki"

Lionsklúbburinn Ösp Akureyri á

Lionsklúbburinn Ösp á Akureyri var með kökubasar á sýningunni "Norðlensk hönnun og handverk" í Hlíðarbæ laugardaginn 6.desember síðastliðinn. Allskonar kökur voru á boðstólnum, nýbakaðar kleinur og soðið brauð, smákökur og sultur til sölu. Mjög skemmtilegt verkefni og allt seldist upp.