Lionsklúbbur Seltjarnanes gefur nætursjónauka

Lionsklúbbur Seltjarnaness afhentum í 5. okt. nætursjónauka til björgunarsveitarinnar Ársæl, í skýli þeirra í Bakkavör á Seltjarnanesi.  Það var Kristján Georgsson sem afhenti sjónaukann Kristni Guðbrandssyni hjá Ársæli. Farið var með nokkra Lionsmenn í siglingu inn á Skerjafjörð eftir afhendinguna og síðan þáðum við kaffi og kleinur í björgunarskýlinu.

Þess má geta að við gáfum sveitinni annan samskonar sjónauka fyrir um einu og hálfu ári.  Að sögn Kristins hefur hann reynst mjög vel við leit í myrkri.

Kveðja
Jón Páll

 

Seltjarnarness_5450
Kristján Georgsson Lkl. Seltjarnarnes og Kristinn Guðbrandsson frá ÁrsæliSeltjarnarnes_5457
Björgunarbátinn Þórði Kristjánssyni áður en haldið var í siglingu inn á Skerjafjörð með Lionsmenn.