Lionsklúbbur Borgarness

Þann 17. janúar 2014 var þúsundasti fundur Lkl. Borgarness haldinn með glæsibrag en klúbburinn var stofnaður þann 2. apríl 1957. Fundurinn var haldinn á  Hótel Borgarnesi  og var mökum boðið og  var heildarfjöldi veislugesta  43 þar af 23 félagar en þennan veturinn eru 31 félagi í klúbbnum.

Lions-1000-Gumundur_og_Ingibjrg
Guðmundur Ingimundarson og Ingibjört kona hans.
Lions-1000-Haukur_og_Ragnheiur
Haukur og Ragnheiður
Lions-1000-ra_og_Jn
Þóra og Jón 

Lions-1000-Skli_formaur
Skúli formaður

Hefðbundin málefnadagskrá endaði með því að Skúli G. Ingvarsson formaður sýndi gamlar blaðaúrklippur frá starfsemi félagsins. Það var virkilega gaman að sjá  þessar gömlu úrklippur og þá ungu glæsilegu menn sem prýddu myndirnar, en ekki er laust við að brjóstkassinn hafi sigið örlítið á nokkrum þeirra frá því að þær voru teknar.  Eftir það var slegið á létta strengi og var Gísli Einarsson veislustjóri. Valið á Gísla var ekki af því að hann býr í næsta húsi við hliðina á hótelinu og þar með enginn fLions-1000-Gsli_veislustjrierðakostnaður  heldur fyrst og fremst af því að hann er einstakur skemmtikraftur.

Á fundinum var öllum félögum afhend vasaljós að gjöf, merkt klúbbnum og fundanúmerinu.  En þegar félagar höfðu fengið þau í hendur beindu þeir ljósinu að Gísla veislustjóra til að hann yrði nú vel upplýstur.  Það er skemmst frá því að segja að Gísli Einarsson fór algerlega á kostum sem veislustjóri þannig að gesti var farið að verkja í brosvöðvana. Aðallega var grínið þó á kostnað félaganna enda af nógu að taka. Inn á milli brustu menn í söng undir öruggri stjórn Jökuls Helgasonar sem spilaði undir á gítar.

Eftir þessa frábæru skemmtun afhentum við Gísla smá glaðning fyrir hans skemmtilega innlegg í fundinn, m.a. í bundnu máli, en Kristján Björn Snorrason frv. félagi okkar gerði nokkrar vísur um lífshlaup Gísla.  Alls voru þetta 19 vísur og hér er sú fyrsta og sú síðasta:

Um Gísla Einars get ég sagt,
Gáfumenni í salnum.
Að í hann þótti lítið lagt
Í Lundareykjadalnum. 

Það er býsna þekkilegt
Á þúsundasta fundi.
Að sýna gleði og sanna mekt
Sninningnum frá Lundi !!

Lions-1000-Sveinn
Haukur ritari

Haukur Þórðarson,                                                                                                                                 ritari