Lionsklúbbur Akureyrar gaf þjálfunarbúnað til Kristnesspítala

gjof-til-kristnesspitala-april-2013
Nýlega kom stjórn Lionsklúbbs Akureyrar á Kristnesspítala  til að afhenda Sjúkrahúsinu á Akureyri sértækan þjálfunarbúnað fyrir einstaklinga sem vegna lömunar geta lítið hreyft sig og hafa heldur ekki getu til að sitja. Um er að ræða rafdrifið fóthjól, sem kostar með ýmsum viðbótarbúnaði  rúma eina milljón króna.
Það voru forstjóri sjúkrahússins og framkvæmdastjóri lyflækningasviðs ásamt stjórnendum á Kristnesspítala sem veittu gjöfinni viðtöku og skýrðu notagildi hennar. Einn stjórnarmanna var fenginn til að reyna tækið eins og sést á meðfylgjandi mynd.
„Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Lionsklúbbur Akureyrar  eða aðrir lionsklúbbar í nágrenninu  koma færandi hendi á Kristnesspítala og er það alltaf jafn þakkarvert,“ segir í frétt frá Sjúkrahúsinu.