Laugardaginn 26.september hélt LCIF teymið fund í Lionsheimilinu að Hlíðasmára í Kópavogi

Laugardaginn 26.september hélt LCIF teymið fund í Lionsheimilinu að Hlíðasmára í Kópavogi

Fundurinn var auglýstur meðal allra Lionsfélaga og boðið var upp á kaffi og kleinur. Á fundinum var farið yfir markmið ársins í starfinu. Þau eru helst að framlög á hvern félaga verði kr. 8.000 og að fleiri taki þátt bæði klúbbar og einstaklingar. Teymið langar til að komast á svæðisfundi og klúbbafundi til að kynna starfsemina.

Seinni hluti fundarins fór í að kynna nýtt alþjóðlegt verkefni sem heitir á ensku Baby lifeline. Verkefnið snýst um að senda bakpoka með öllu því sem tilþarf við barnsburð. Pokunum verður síðan dreift á heilsugæslustöðvar í Úkraínu til nota fyrir ljósmæður og lækna til að geta veitt fæðingarhjálp utan sjúkrahúsa. Vegna stöðugra árása á innviði s.s. sjúkrahús hefur fæðingarhjálp farið meira og meira út af sjúkrahúsum. Með þessum pokum er á einum stað allt það sem nýburar og mæður þurfa við fæðinguna.

Með bestu kveðju

Björn Guðmundsson

LCIF stjóri MD109

MDC. 109, 2022-2025

354-897-7832