Heimsókn alþjóðaforseta Barry J Palmer og Anne Palmer 2014

Fyrir páska í ár kom alþjóðaforseti Lions Barry J. Palmer og kona hans Anne til Íslands.  Yfirstjórn Lions á Íslandi tók á móti honum og fór með honum í ýmsar heimsóknir.

Fyrsta kvöldið þann 7. apríl var farið í Lionsklúbbinn Úu í Mosfellsbæ, þar sem tekin var inn í Lions nýr Lionsfélagi.

Daginn eftir 8. mars var farin skoðunarferð um Reykjavík, þar sem komið var við í Perlunni og Hörpu.  Eftir hádegi var forseti Ísland Ólafur Ragnar Grímsson heimsóttur.  Hann tók vel á móti alþjóðaforseta eins og vant er.  Af því loknu var farið í forsetareit Lionsklúbbsins Ásbjarnar, þar sem alþjóðaforsetar síðustu 16 ára hafa plantað þar tré. Um kvöldið var samkoma þar sem alþjóðaforsetinn tók á móti Lionsfélögum.

Þriðja daginn 9. mars var fundum þar sem alþjóðaforsetinn tók á móti leiðtogum Lions á Íslandi.  Hann innti þá eftir hvað þeir ætluðu að gera til að ná stefnumálum sínum á síðast fjórðungi starfsársins.  Foringjarnir leituðust við að svara því.  Að þeim fundi loknum var farið í Mosfellsbæ og skoðað dvalarheimilið Eirhamar sem Lionsklúbbarnir í Mosfellsbæ hafa styrkt mikið. Auk þess var farið í ullarverksmiðju Ístex, en Ástralinn Barry J Palmer hóf starfsferil sinn sem ullarmatsmaður.  Endað var á að skoða vistunarheimilið Hlein á Reykjalundi sem Lions styrkti með Rauðrar fjaðrarsöfnun og framlagi úr alþjóðahjálparsjóði Lions LCIF.

Tekið var eftir því hversu góður ræðumaður núverandi alþjóðaforseti Barry J Palmer er.  Hann sagði á lifandi hátt frá starfi Lions í Afríku, Kolombíu og víðar og hvatti hann íslenska Lionsmenn til að fara til Afríku og gera gagn.

Palmer_5191s

Við inntöku félaga í Lkl. Úu, frm. Svafa Harðardóttir, alþjóðaforseti Barry J Palmer, nýji félaginn Axelína M. Garðarsdóttir og meðmælandi hannar Signý Sigtryggsdóttir.

 Palmer_5350s
Í móttöku alþjóðaforseta, Anne og Barry J Palmer ásamt forseta Íslands Ólafi Ragnar Grímsson.

Palmer_5449s
Hér hefur alþjóðaforseta gróðursett tréð sitt.

Emblur_5580s
Mótta alþjóðaforseta var á fundartíma Lionsklúbbsins Emblu og ákváðu þær að koma fylgtu liði á fundinn og hitta Barry J Palmer.

Palmer_5639s
Ferðahópurinn í dvalarheimilinu Eirhamar.

Palmer_5730s
Lionsmaðurinn og forstjóri Ístex Guðjón Kristinsson sýnir alþjóðaforseta framleiðsluferlana.

Hér er hægt að sjá ferðasaga sem send verður alþjóðaforseta. >>>>>>>