Gáfu 19 sjónvarpstæki

Lionsklúbburinn Njörður hefur með stuðningi Heimilistækja ehf. fært legudeild hjarta-, lungna- og augnskurðdeildar 12E á Landspítala við Hringbraut að gjöf 19 Philips-sjónvarpstæki. Þeim hefur verið komið fyrir á sjúkrastofum og í setustofu.
 
"Á deildinni liggja sjúklingar eftir oft stórar skurðaðgerðir eða áverka á brjóstholi. Eftir aðgerð þurfa menn að leggja hart að sér til að verða sjálfbjarga og komast út í lífið aftur. Afþreying beinir huganum frá erfiðleikum dagsins og koma sjónvörpin þar að góðum notum. Sjónvarpstækin sem fyrir voru á deildinni voru komin mjög til ára sinna og mörg á síðasta snúningi eða alveg ónýt. Endurnýjunar var þörf og þar kom Lionklúbburinn Njörður til bjargar," segir í frétt frá Landspítalanum. Sjónvarpstækið í setustofunni er 42 tommu, tækin 18 á sjúkrastofunum eru 32 tommu og var þeim komið fyrir andspænis rúmunum. "Ákveðið var að setja þar ekki venjuleg heimilissjónvarpstæki heldur tæki sem eru til dæmis notuð á hótelherbergjum. Hver sjúklingur hefur stjórn á sínu sjónvarpstæki og engin truflun er af hljóði frá öðru sjónvarpstæki á sjúkrastofunni vegna þess að það fer um innanhússhljóðkerfi spítalans," segir í tilkynningunni.
 
Njordur við afhendingu sjónvarpanna
Hópur félagsmanna í Lionsklúbbnum Nirði afhenti gjöfina formlega á hjarta- og lungnaskurðlækningadeild og var þakkaður höfðingsskapurinn. Heildarverðmæti tækjanna er nærri tveimur milljónum króna.  
 
Greinin í morgunblaðinu má sjá hér http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1458928/