Fyrsti bekkingur Grunnskóla Hveragerðis fær litabókar um brunavarnir

bokin_kynnt_VK

Hér eru myndir frá afhendingu litabókar um brunavarnir en Lionsklúbbur Hveragerðis gefur árlega fyrstu bekkingum Grunnskóla Hveragerðis þær.

axel_afhendir_VK
Axel Wolfram formaður klúbbsins afhenti
grunnskólabörnunum bækurnar

Að þessu sinni var það Axel Wolfram formaður klúbbsins starfsárið 2013-2014 sem afhenti grunnskólabörnunum bækurnar. Snorri Baldursson (fyrrverandi slökkviliðsstjóri slökkviliðs Hveragerðis) kynnti svo börnum fjögurra bekkja innihald bókarinnar.

Markmiðið með bók þessari er að gera grunnskólabörn að brunavörðum heimilanna. Frá upphafi hafa hin ýmsu tryggingarfélög og fyrirtæki sem selja öryggistæki vegna bruna styrkt útgáfuna og kennarar og slökkviliðsstjórar hafa talið hana vera mjög vel til þess fallna að vekja athygli barna á réttum viðbrögðum varðandi brunavarnir.

Ljósmyndirnar tók Vilmundur Kristjánsson