Framboð á umdæmis- og fjölumdæmisþingum 2014

Tryggvi Kristjánsson til embætti fjölumdæmisstjóra

Tryggvi_KrTryggvi Kristjánsson er fæddur á Akureyri 24. mars 1970. En hann hefur alla tíð búið á Dalvík, ólst upp í litlu samfélagi þar sem allir þekktu alla og var svo lengi vel. En eftir að grunnskóla lauk hóf hann störf hjá KEA og vann þar um nokkurt skeið, hann fór svo í vinnuvélanámskeið og var hjá Dalvíkurbæ og svo verktökum í allnokkur ár. Svo eftir að hann tók meirapróf og rútupróf hóf hann störf hjá SBA-Norðurleið eða um 1995 og starfar við akstur með ferðamenn á sumrin, en á veturna á skíðasvæðinu á Dalvík. Að frátöldu 1993 er hann var við vinnu í Danmörku og Þýskalandi.
Eiginkona Tryggva er Hólmfríður Guðrún Skúladóttir frá Akureyri og eiga þau tvö börn, Skúla Lórenz 1996 og Valgerði Fríði 2010 . Tryggvi gékk í Lionsklúbb Dalvíkur 1997 og hefur gegnt stöðu gjaldkera 1999-2000 og svo formaður 2007-2008 og svo aftur 2009-2011. Þá hefur hann verið í flestum nefndum og var t.d. formaður vorkomunefndar oftar enn einu sinni‚ en þar var á ferðinni menningarhátíð sem klúbburinn stóð fyrir. Umdæmisstjóri í umdæmi 109B árið 2012 – 2013 og varafjölumdæmisstjóri 2013-2014.

Einar Þórðarson til embættis umdæmisstjóra 109 A

einar_thorarEinar er stofnfélagi í Lkl. Fjörgyn, hefur gegnt flestum embættum innan klúbbsins, m.a. verið formaður tvisvar. Hann og klúbbur hans stóðu að baki áskorun um breytingu á fyrirkomulagi unglingabúða Lions hér á Íslandi 1997. Hann var í undirbúningsnefnd unglingabúðanna og búðastjóri fyrstu búðanna sumarið 1999 á Laugarvatni. Þarna var brotið blað í sögu unglingaskipta Lions á Íslandi og eru slíkar búðir búnar að sanna gildi sitt. Hann var svæðisstjóri 1998-1999, unglingamálastóri 1999-2002, fjölumdæmisþingstjóri á 50 ára afmælisþingi Lions, umdæmisstjóri 109B 2003-2004, í úthlutunarnefnd Rauðrar fjaðrar, félagastjóri, verkefnastjóri MERL - félagafjölgun, sjónverndarfulltrúi 109A 2011-2012 og í Rauðufjaðrarnefnd 2011-2012. Tók þátt í stofnun Lkl. Skagastrandar og Lkl. Úlfari. Kennari í Leiðtogaskóla Lions. Þátttaka í alþjóðasamstarfi, m.a. leiðtogaskóla Lions og Evrópuþing í Portúgal, NSR þing á Álandseyjum, Noregi og í Reykjavík, á alþjóðaþingi Lions í Denver, í norrænu MERL teymi, fulltrúi Íslands á fjölumdæmisþingi Danmerkur. Einar var tilnefndur Melvin Jones félagi 1996 og 2005. Einar er kerfisfræðingur að mennt. Eiginkona hans er Bergljót Jóhannsdóttir í Lkl. Fold og eiga þau 3 uppkomin börn.

Ingimundur Guðberg Andrésson til embættis umdæmisstjóra 109 B

IngimundurIngimundur Guðberg er fæddur þann 20. júlí 1948 í Tálknafirði. Eftir að barnaskóla lauk lá leiðin í Vélskóla Íslands þar sem hann lauk burtfararprófi vorið 1970. Þá tók við nám í vélvirkjun í Vélsmiðju Tálknafjarðar sem lauk með sveinsprófi veturinn 1973.
Hann hóf störf hjá Rafveitu Patrekshrepps í janúar 1973 þar sem hann lærði rafvirkjun og tók sveinspróf 1976. Er Orkubú Vestfjarða var stofnað og tók til starfa 1978 starfaði hann þar og starfar enn sem vélstjóri og rafvirki, nær óslitið að undanskildum tveim og hálfu ári sem hann starfaði við kennslu og sem hafnarvörður í Vesturbyggð.
Ingimundur gekk í Lionsklúbb Patreksfjarðar í janúar 1977 hann var gjaldkeri klúbbsins starfsárið 1980-1981 en 1984 tók hann sér hlé í Lionshreyfingunni. Hann kom aftur í Lionsklúbb Patreksfjarðar veturinn 2003. Var ritari starfsárin 2003-2004 og 2004-2005, formaður klúbbsins starfsárið 2005 – 2006, Svæðisstjóri svæðis 4 í 109 B starfsárið 2010 til 2011. Varaumdæmisstjóri 2013-2014.
Ingimundur hefur setið nokkur þing hreyfingarinnar og haustið 2003 fór hann í Leiðtogaskóla Lions í Munaðarnesi.
Ingimundur er kvæntur Sigurjónu Kristófersdóttur þau eiga þrjú uppkomin börn og 8 barnabörn.

Guðmundur Helgi Gunnarsson til embættis varaumfjölumdæmisstjóra:

GumundurHGunnarssonLionsklúbburinn Fjörgyn býður fram Guðmund Helga Gunnarsson til embættis vara fjölumdæmisstjóra MD 109 starfsárið 2014-2015.
Guðmundur Helgi fæddist í Reykjavík þann 22. sept. 1947 og er húsasmíðameistari að mennt og hefur allan sinn starfsaldur starfað í byggingariðnaði á einn eða annan hátt, sem smiður, verkstjóri, byggingarstjóri, þjónustustjóri og nú sem verkefnisstjóri hjá ÍAV Fasteignaþjónustu.
Guðmundur Helgi gekk til liðs við Lionsklúbbinn Fjörgyn vorið 2000 eftir að hafa þekkt vel til Lionshreyfingarinnar í 10 ár.
Í klúbbnum sínum Fjörgyn hefur hann m.a. verið ritari 2002-2003, formaður klúbbsins tvisvar 2005-2006 og aftur 2008-2009. Guðmundur hlaut Melvin Jones viðurkenningu frá klúbbnum árið 2007, þá hlaut hann Club President Excellence Award árið 2010. Guðmundur Helgi sótti Leiðtogaskóla Lions í Munaðarnesi 2002. Hann hefur sótt þrenn alþjóðaþing og fjölmörg NSR þing, (Norræna samstarfsráð Lions) bæði sem maki og umdæmisstjóri.

Störf fyrir umdæmi og fjölumdæmi

Guðmundur Helgi sat í byggingarnefnd fjölumdæmisins á árunum 2001-2003 þar sem fjallað var um húsnæðismál hreyfingarinnar m.a. hvort selja ætti Lionsheimilið í Sóltúni eða ráðast í endurbætur og var einnig í úthlutunarnefnd Rauðufjaðrarsjóðsins 2004. Hann starfaði í þingnefnd fjölumdæmisþings 2008. Guðmundur Helgi var fræðslustjóri frá 2009-2011 og annaðist kennslu í ritaraskóla Lionshreyfingarinnar á árunum 2004-2009 og 2011.
Hann hefur starfað í umdæmisstjórnum beggja umdæma, fyrst sem LCIF-og Medic Alert fulltrúi í umdæmisstjórn 109B 2006-2007, LCIF fulltrúi 2007-2008, fræðslufulltrúi 2008-2009. Lionsklúbburinn Fjörgyn hefur frá árinu 2009 tilheyrt umdæmi 109 A og var Guðmundur Helgi umdæmisritari/ gjaldkeri starfsárin 2009 – 2011 og umdæmisstjóri 109 A 2012-2013.
Eiginkona Guðmundar Helga er Hrund Hjaltadóttir grunnskólakennari. Hún er stofnfélagi í L.kl. Fold. Hún hefur tvívegis verið formaður í klúbbnum og gengt ýmsum embættum í umdæmi 109 B og fjölumdæmi MD 109. Hún er fyrrverandi umdæmis-og fjölumdæmisstjóri.
Kæru Lionsfélagar Guðmundur Helgi býður enn á ný fram starfskrafta sína fyrir Lionshreyfinguna og gerir það með mestu ánægju .

Jón Pálmason til embættis varaumdæmisstjóra 109A

Jn_Plmason_8700sLionsklúbburinn Víðarr býður fram til embættis varaumdæmisstjóra í umdæmi 109A, klúbbfélaga sinn Jón Pálmason rafmagnsverkfræðing. Jón hefur verið í klúbbnum síðan 1. apríl 2002, var ritari 2004-2005 og hann gegndi formennsku í klúbbnum 2011 - 2012 og hefur gegnt flestum öðrum embættum í klúbbnum. Auk þess hefur hann gegnt stöðu netstjóra Lions undanfarin 4 ár og  starfi svæðisstjóra á svæði 8 starfsárið 2013-2014 í umdæmi 109A. Eiginkona Jóns er Marianne S. Nielsen og eiga þau 3 börn.

Stefán Árnason til embættis varaumdæmisstjóra 109B

Stefan_Arnason-1Lionsklúbburinn Vitaðsgjafi býður fram félaga klúbbsins Stefán Árnason til að gegna embætti varaumdæmisstjóra umdæmis 109 B starfsárið 2014 - 2015.
Við teljum hann vel undirbúinn fyrir þetta embætti enda hefur hann mikla reynslu af trúnaðarstörfum fyrir Lkl. Vitaðsgjafa þar sem hann hefur verið félagi síðan 1993.
Á þeim tíma hefur hann gegnt flestum þeim embættum sem til er að dreifa í Lionsklúbbi og meðal annars verið formaður klúbbsins tvisvar. Stefán var svæðisstjóri á svæði 6 2009 – 2010 og GMT fulltrúi 2010 – 2011. Stefán lauk miðskólaprófi frá Gagnfræðaskóla Akureyrar og hefur lengst af síðan unnið ýmiss skrifstofustörf. Hann hefur frá árinu 1991 verið skrifstofustjóri hjá Eyjafjarðarsveit og setið í ýmsum nefndum og stjórnum fyrir sveitarfélagið. Stefán lauk námi í opinberri stjórnsýslu og stjórnun frá HÍ 2001. Auk þess hefur hann sótt ýmis námskeið tengd starfi sínu hjá Eyjafjarðarsveit.
Stefán er kvæntur Vöku Jónsdóttur, iðnrekstrarfræðingi og eiga þau tvær uppkomnar dætur.

Gunnar Vilbergsson til embættis annars varaumdæmisstjóra 109A

Gunnar VilbergssonLionsklúbbur Grindavíkur býður fram Gunnar Vilbergsson til embættis annars varaumdæmisstjóra 109A. Gunnar Vilbergsson er fæddur í Grindavík 25. mars 1946. Hann eins og fjölmargir Grindvíkingar byrjaði ungur á sjó og var til sjós í 4 ár.  Hann vann síðan við ýmis störf í landi s.s. vörubílstjóri, fiskmatsmaður ofl.  Þá var hann lögreglumaður í rúm 20 ár og umboðsmaður Hagtryggingar og síðan Sjóvár síðan 1982.  Ungur hneigðist hann að félagsstörfum og var hann formaður Ungmennafélags Grindavíkur 1968-1969, í stjórn knattsp.deildar UMFG í 20 ár þar af formaður samfleitt í fimm ár. Var í JC, í bæjarstjórn Grindavíkur 1982-1986.  Hann gekk í Lionsklúbb Grindavíkur í okt. 1998 og þar hefur hann m.a. verið formaður, ritari, gjaldkeri og í ýmsum nefndum.  Hann hefur verið svæðisstjóri á svæði 5 og nú síðast sykursýkisfulltrúi í umdæmi 109-A s.l. þrjú ár.  Hann hefur fengið viðurkenningu fyrir þau störf öll árin og nú síðast afhenti Alþjóðaforseti Lions honum sérstaka viðurkenningu.  Gunnar er einnig Melvin Jones félagi.

Björg Bára Halldórsdóttir

Björg Bára HalldórsdóttirLionsklúbburinn Rán býður fram Björgu Báru Halldórsdóttir til emættis annars var umdæmisstjóra 109B starfsárið 2014-2015. Björg Bára gekk í Lionsklúbbinn Rán árið 1991 og hefur gegnt flestum embættum innan klúbsins í stjórn og nefdum þar af embotti formanns tvisvar.  Hún var ritari umdæmis 109B starfsárið 2011-2012 og er nú menningarfulltrúi i umdæmi 109B.

Kristín Þorfinnsdóttir til embættis fjölumdæmisritara

kristnKristín Þorfinnsdóttir félagi í Lionsklúbbnum Emblu á Selfossi býður sig fram sem fjölumdæmisritara starfsárið 2013-2014.

Kristín er fædd 21. Maí 1958 og gekk til liðs við Lionshreyfinguna árið 1998. Hún hefur gengt störfum gjaldkera, og formanns tvisvar sinnum og setið í ýmsum nefndum klúbbsins. Hún gengdi starfi umdæmisritara í A umdæmi á starfsárunum 2005 til 2006. Kristín hefur starfað í umdæmisstjórn og fjölumdæmisráði í nokkur ár. Hún var umdæmisstjóri í A umdæmi 2010 til 2011, hlaut viðurkenningu alþjóðaforseta 2012 og einnig Melvin Jones viðurkenningu. 
Kristín býr í Hafnarfirði og er eiginmaður hennar Kristinn Pálsson

Framboð til embættis ungmennaskiptastjóra fjölumdæmis

Pálmi HannessonPálmi Hannesson Lkl. Garði gefur kost á sér í embætti ungmennaskiptastjóra. Pálmi hefur verið félagi í Lkl.Garði síðan í janúar 1987, þar hefur hann gegnt hinum ýmsu embættum, verið gjaldkeri, ritari og nokkru sinnum formaður, þá hefur hann gegnt embætti svæðisstjóra á svæðir 5 í A umdæminu í þrígang, verið umdæmisstjóri í A umdæminu og síðan fjölumdæmisstjóri. Útbreiðslustjóri fyrir fjölumdæmið og nú síðustu ár ungmennaskiptastjóri. Pálmi er í sambúð með Sigríði Birnu Sigurhansdóttur og búa þau í Ytri-Njarðvík Pálmi Hannesson Lkl. Garði gefur kost á sér í embætti ungmennaskiptastjóra. Pálmi hefur verið félagi í Lkl. Garði síðan í janúar 1987, þar hefur hann gegnt hinum ýmsu embættum, verið gjaldkeri, ritari og nokkru sinnum formaður, þá hefur hann gegnt embætti svæðisstjóra á svæðir 5 í A umdæminu í þrígang, verið umdæmisstjóri í A umdæminu og síðan fjölumdæmisstjóri. Útbreiðslustjóri fyrir fjölumdæmið og nú síðustu ár ungmennaskiptastjóri. Pálmi er í sambúð með Sigríði Birnu Sigurhansdóttur og búa þau í Ytni-Njarðvík

Framboð í embætti alþjóðasamskiptastjóra

Árni Viðar FriðrikssonÁrni V. Friðriksson er fæddur 1949 og er rafiðnfræðingur að mennt. Árni hefur verið félagi í Lionsklúbbnum Hæng á Akureyri frá 1976. Hann hefur verið formaður ritari og gjaldkeri klúbbsins auk þess að hafa starfað í flestum nefndum klúbbsins. 1995-1996 starfaði hann í umdæmisstjórn 109B og var svæðisstjóri á svæði 6 starfsárið 1996-1997. Árið 2005 var hann gerður af Melvin Jones félaga. Þá var hann umdæmisstjóri 109B starfsárið 2008-2009 og fjölumdæmisstjóri 2011-2012. Árni er framkvæmdastjóri verkfræðistofunnar Raftákns ehf á Akureyri. Hann er giftur Gerði Jónsdóttur kennara og eiga þau þrjú börn og fimm barnabörn.