Fjörgyn dreifir kynningarbækling í Grafarvogi

Nýlega gaf Lionsklúbburinn Fjörgyn í Grafarvogi út frétta- og kynningarbréf um starf klúbbsins og Lionshreyfingarinnar.

Kynningarbklingur_Fjrgyn_20014_15.02.2014_EJL-HSF_Page_1

Helgina 28. febrúar til 2. mars skiptu Fjörgynjarmenn liði og dreifðu bréfinu á öll heimili í Grafarvogi norðan Gullinbrúar, alls um 5.200 heimili. Með þessu átaki vill Fjörgyn minna á starf sitt og Lions til heilla börnum og unglingum, meðal annars í Grafarvogi. Einnig er þess vænst að kynningarbréfið kveiki áhuga karla í hverfinu til að ganga í sífellt stækkandi raðir okkar Fjörgynjarmanna.