Birkifræsöfnun Lions og Land og skógur 2026 er hafin

Birkifræsöfnun Lions og Land og skógur 2026 er hafin

Kæri Lionsfélagi.

Birkifræsöfnunin hefst í dag, 22. september, í Reykhúsaskógi hjá Lionsklúbbnum Sif í Eyjafjarðarsveit. Á morgun, 23. september, bætast fleiri klúbbar í hópinn. Við hvetjum nú Lionsklúbba um allt land til að taka þátt og leggja sitt af mörkum í þessu skemmtilega og mikilvæga umhverfisverkefni.

Endilega bjóðið fjölskyldu og vinum með ykkur – þetta er skemmtilegt fjölskylduverkefni þar sem ekkert kynslóðabil er.

Verum sýnileg og deilum gleðinni. Sendið okkur gjarnan myndir og frásagnir af söfnuninni svo við getum fylgst með þátttöku Lionsfélaga um allt land. Einnig hversu mikið magn af fræjum er safnað, best er að mæla það í lítrum.

Sendið fyrirspurnir sem vakna til umhverfisstjóra Lions á netfangið:
dsf@simnet.is

Hægt er að panta fræðslu fyrir klúbba

Hafið samband við umhverfisstjóra Lions, sem er tengiliður verkefnisins „Söfnum og sáum birkifræ“ við Land og skóg.

Fagaðilar hjá Landi og skóg eru tilbúnir að koma á fundi hjá ykkur og veita fræðslu um verkefnið ef þess er óskað. Umhverfisnefnd Lions er einnig tilbúin að svara fyrirspurnum og aðstoða eftir því sem hægt er.

Lionsklúbbar um allt land – höldum áfram að safna birkifræi 🌱

Söfnunin getur staðið yfir svo lengi sem reklar hanga á birkitrjánum, jafnvel fram í desember. Það er því enn góður tími til að skipuleggja söfnun, fá félagana með og fara út í náttúruna að tína birkifræ.

Söfnunarkassar sem enn eru til verða nýttir. Athugið að líma vel fyrir botn og lok á kössunum og merkja þá með nafni klúbbsins.Sérstakir pokar verða einnig notaðir undir fræin og verða merktir verkefninu, meðal annars með Lionsmerkinu. Ekki er enn til nægilegt magn af pokunum, en unnið er að því að útvega fleiri.

Nánari upplýsingar má finna á slóðinni https://hekluskogar.is/frodleiksmolar-hekluskoga/sofnun-og-saning-a-birkifraei/

Tökum höndum saman – söfnum og sáum birkifræ!

Með kveðju,
Umhverfisnefnd Lions

Einar Bjarnason umhverfisfulltrúi109 A.

Anna Kristín Gunnlaugsdóttir umhverfisfulltrúi 109 B,

Dagný Finnsdóttir umhverfisstjóri MD 109