59. þing Lionsumdæmis 109 Sauðárkróki

Lionsþingið á Sauðárkróki verður haldið dagana 29. og 30. maí næstkomandi.  Undirbúningur hefur gengið vel hjá Skagfirðingunum og allt að verða tilbúið.  Þinghaldið fer að mestu fram í Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra auk þess sem hádegisverðir og lokahóf verða í íþróttahúsinu og kynningarkvöldið í Reiðhöllinni Svaðastöðum.

Skráning hefur gegnið nokkuð vel en þó eiga nokkrir klúbbar enn eftir að skila skráningum og eru þeir hvattir til að gera á því bragabót sem allra fyrst.

Sjá nánar á upplýsingasíðu um þingið >>>>>>>>