Úurnar í Mosfellsbæ færa hjálparsjóði Lágafellskirkju peningagjöf

Sr. Ragnheiður Jónsdóttir og Alfa Regína Jóhannsdóttir
Sr. Ragnheiður Jónsdóttir og Alfa Regína Jóhannsdóttir

Úurnar buðu mökum og vinum til jólafundar í Safnaðarheimili Lágafellskirkju. Þar afhentu Úurnar hjálparsjóði Lágafellskirkju peningaupphæð sem sr. Ragnheiður Jónsdóttir veitti viðtöku. Hún flutti síðan fallega jólahugvekju. Vigdís Grímsdóttir las upp úr bók sinni Drauma min, minningar Sigríðar Halldórsdóttur. Ung söngkona, Guðrún Ýr, gladdi okkur með söng og gítarspili og snæddur var gómsætur verður frá Grillvagninum. Í lokin kom svo Sveinki og kætti alla með góðum gjöfum.