Þann 27. maí s.l. afhenti Lionsklúbbur Reykjavíkur styrk til sjóðsins „Blind börn á Íslandi”

Þann 27. maí s.l. afhenti Lionsklúbbur Reykjavíkur styrk til sjóðsins „Blind börn á Íslandi”

Þann 27. maí s.l. afhenti Lionsklúbbur Reykjavíkur styrk til sjóðsins „Blind börn á Íslandi” .í hófi hjá Blindarfélagi Íslands að Hamrahlíð 17 í Reykjavík.  Styrkurin nam alls 2.000.000 kr

Hlutverk sjóðsins „Blind börn á Íslandi”  er að styrkja blind og sjónskert börn allt að átján ára aldri til kaupa á ýmsu því sem getur orðið þeim til aukins þroska og ánægju í lífinu. Þar á meðal eru sérhönnuð leikföng, leiktæki, hljóðfæri, tölvur og annað slíkt sem opinberir aðilar styrkja ekki foreldra til kaupa á.

 Sjóðurinn var stofnaður sumarið 1992 af umsjónarmönnum útvarpsþáttarins „Tveir með öllu” því þeir vildu færa blindum og sjónskertum börnum hluti sem nýtast þeim vel í daglegu lífi.

Sérhönnuð leikföng og leiktæki fyrir blind og sjónskert börn eru mjög dýr og því mikilvægt að hjálpa sjóðnum að vaxa með framlögum frá góðu fólki og fyrirtækjum.

 Á myndinni eru frá vinstri Valur Jóhannsson, í líknarnefnd klúbbsins, Gunnar Jóhannesson, formaður Lionsklúbbsins, Sigþór Unnsteinn Hallvarðsson, formaður Blindrafélagsins og formaður stjórnar sjóðsins „Blind börn á Íslandi”, Þorkell Helgasom, gjaldkeri Lionsklúbbsins og Hrafn Magnússon, formaður líknarnefndar.