Söfnum birkifræjum aftur í ár!

Söfnum birkifræjum aftur í ár!

„Söfnum birkifræjum aftur í ár!

Í fyrra tók Lions á Íslandi þátt í landsátaki í birkifræssöfnun. Nú endurtökum við leikinn á ný. Lionshreyfingin mun taka virkan þátt í að safna birkifræjum um land allt. Söfnunin mun standa yfir frá miðjum september og fram yfir miðjan október. Og eins og í fyrra, þá mun Bónus leggja sitt af mörkum með því að legga til öskjur undir fræin og einnig taka á móti öskjunum að frætínslunni lokinni.

Við hvetjum alla Lionsmenn og Lionskonur í öllum klúbbum til að leggja þessu verðuga verkefni lið.

Þetta er nefnilega kjörið útivistarverkefni fyrir fólk á öllum aldri.

Um leið er rétt að minna á mikilvægi þess að vera taka myndir og setja inn á vefinn okkar. Það er nokkurs konar rafræn skráning.

Frekari upplýsingar má finna á vefslóðinni: www.birkiskogur.is“ og  á upplýsingamyndbandi.