Fréttatilkynning – Samstarf um söfnun og sáningu birkifræs til ársins 2030

Fréttatilkynning – Samstarf um söfnun og sáningu birkifræs til ársins 2030

Lions á Íslandi og Land og skógur hafa framlengt samstarf sitt um verkefnið „Söfnum og sáum birkifræi“ til ársins 2030. Samstarfið miðar að því að efla þátttöku almennings í endurheimt og uppbyggingu íslenskra birkiskóga.

Með undirritun viljayfirlýsingar á Lionsþingi á Laugavatni þann 30. maí 2026 staðfestu Lions á Íslandi og Land og skógur vilja sinn til áframhaldandi samstarfs um verkefnið.

Markmið verkefnisins er að hvetja almenning og félagasamtök til þátttöku í söfnun og sáningu birkifræs, auka fræðslu um mikilvægi birkiskóga og stuðla að endurheimt vistkerfa og aukinni útbreiðslu íslenskra birkiskóga.

Viljayfirlýsinguna undirrituðu Anna Fr. Blöndal fjölumdæmisstjóri og Dagný Finnsdóttir umhverfisstjóri fyrir hönd Lions á Íslandi. Hreinn Óskarsson, sviðstjóri þjóðskóga, landa og innviða hjá Landi og skógi, fyrir hönd stofnunarinnar.

Viljayfirlýsing Lions á Íslandi og Land og skógur