Lkl. Hveragerðis veitir Leikfélagi Hveragerðis fjárstyrk

Daði Ingimundarson afhenti Hirti Benidiktssyni styrkinn.
Daði Ingimundarson afhenti Hirti Benidiktssyni styrkinn.

Þann 27. janúar afhenti Lionsklúbbur Hveragerðis Leikfélaginu í Hveragerði fjárstyrk í tilefni 70 ára afmælis þess síðarnefnda. Var það gert í lok frumsýningar verksins Naktir í náttúrunni (Full Monty). Sögusviðinu hefur verið breytt og snýr að Hveragerði og atvinnulausum félögum sem voru meðal annars að vinna við garðyrkju og fléttast þarna inn í sýninguna t.d. Eden, heilsuhælið, tívolíið og auðvitað garðyrkjan. Félagar Lionsklúbbs Hveragerðis nutu sýningarinnar og mæla heilshugar með verkinu.