Lionsklúbburinn Eir fór saman að plokka

Lionsklúbburinn Eir fór saman að plokka

 Lionsklúbburinn Eir hittist mánudaginn 20. apríl til að " plokka saman"

10 vaskir félagar voru mættar með allar græjur í farteskinu úti á Seltjarnarnesi rétt við Gróttu.

Veðrið lék við okkur blankalogn, hreyfðist ekki hár á höfði og sólskin.

Eftir góðan árangur var haldið á veitingastaðinn Ráðagerði og snæddur indælis kvöldverður.

Frábær samvera og við vöktum mikla athygli í gulu Lions vestunum okkar.