Lionsklúbbur Patreksfjarðar í góðum tengslum við Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Eydís Þórsdóttir deildarstjóri Fjölbrautaskóla Snæfellinga, Eiður B Thoroddsen formaður, Gunnar Sean…
Eydís Þórsdóttir deildarstjóri Fjölbrautaskóla Snæfellinga, Eiður B Thoroddsen formaður, Gunnar Sean Eggertsson gjaldkeri og Úlfar B Thoroddsen ritari.

Lionsklúbbur Patreksfjarðar í góðum tengslum við Fjölbrautaskóla Snæfellinga.

Á meðfylgjandi mynd tekur Eydís Þórsdóttir deildarstjóri Fjölbrautaskóla Snæfellinga við skjá og tengdum búnaði sem Lionsklúbbur Patreksfjarðar færði Patreksfjarðardeild skólans nýlega til notkunar við fjarkennsluna. Fulltrúar klúbbsins við afhendinguna voru Eiður B Thoroddsen formaður, Gunnar Sean Eggertsson gjaldkeri og Úlfar B Thoroddsen ritari.

Klúbburinn hefur veitt nýnemum Patreksfjarðardeildar skólans fjárstyrk til bókakaupa frá því hann  tók til starfa á  Patreksfirði haustið 2007.