Gísli Már Gíslason félagi í Lionsklúbbi Patreksfjarðar hefur verið skipaður í embætti 2. vara Umdæmisstjóra á síðari hluta starfsárs 2025 - 2026 og fyllir með því skarð í embættismannaskrá B Umdæmisins. Gísli hefur verið félagi í Lionsklúbbi Patreksfjarðar frá 2017 og verið í ýmsum nefndum og starfað að undirbúningi ýmsra viðburða á vegum klúbbsins. Hann hefur verið formaður klúbbsins frá 2024 og er settur svæðisstjóri á svæði 4, 2025 – 2026. Hann hefur auk þess verið fulltrúi í verkefnisnefnd Umdæmis 109B.
Nánar um Gísla Má:
Gísli er fæddur í Reykjavík og ólst hann þar upp og á Hvallátrum í Rauðasandshreppi, nú Vesturbyggð. Gísli Már Gíslason er einn af áhrifamestu líffræðingum Íslands; frumkvöðull í vatnalíffræði og vistfræðirannsóknum, prófessor við Háskóli Íslands í rúma fjóra áratugi, öflugur leiðtogi í háskóla- og náttúruverndarstörfum og alþjóðlega virtur vísindamaður sem stýrt hefur umfangsmiklum rannsóknum á ferskvatnsvistkerfum og áhrifum loftslagsbreytinga á vatnalíf bæði hérlendis og erlendis.