Friðarveggspjaldakeppni Lions 2025-2026

2024-25
2024-25 "Peace Without Limits", Shuwen Wang, 13 ára frá Kína

Friðarveggspjaldakeppnin var fyrst haldin 1988 og markmiðið að gefa grunnskólanemendum  tækifæri til að koma á framfæri á skapandi hátt hugmyndum sínum varðandi heimsfrið og miðla framtíðarsýn sinni til umheimsins. Um það bil 600.000 börn frá 75 löndum taka þátt í keppninni árlega.

Lions á Íslandi styrkir keppnina og er hún opin grunnskóla börnum á aldrinum 11 - 13 ára.

Hvert ár er valið þema til að vekja ímyndunarafl nemendanna. Tjáning, listrænt gildi og frumleiki eru þau þrjú viðmið sem notuð eru til að meta veggspjöldin á öllum dómstigum.

Þema starfsársins 2025-2026 er :

ALLIR SEM EINN – TOGETHER AS ONE

Keppnin bíður nemendum að sýna með myndverkum sínum  hugmyndir þeirra um frið.

Fulltrúar frá Lions hafa samband við þá skóla sem skrá sig til  þátttöku í verkefninu og velja, með aðstoð fagfólks, einn sigurvegara úr hverjum skóla og þau verk eru síðan metin af dómnefnd sem velur eitt verk frá Íslandi til að verðlauna hér heima og senda í alþjóðakeppnina.

Í  alþjóðakeppninni eru meðlimir lista-, mennta-, fjölmiðla-, friðar- og ungmennasamtaka valdir í dómnefnd sem velur 23 verðlaunahafa og einn sem hlýtur aðalverðlaun.

Verðlaunahafi aðalverðlauna fær ferð á verðlaunaathöfn þar sem hún/hann fær peningaverðlaun að upphæð USD 5.000,- (eða sambærilega upphæð í eigin gjaldmiðli) og viðurkenningarskjal. Tveir fjölskyldumeðlimir (annar foreldri eða forráðamaður keppanda) og formaður klúbbs eða annar klúbbmeðlimur (samþykktur af formanni) fylgir sigurvegaranum til athafnarinnar.

23 aðrir verðlaunahafar fá verðlaun að upphæð USD 500,- (eða sambærilega upphæð í eigin gjaldmiðli) og viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna. Að auki eru verkin 24 til sýnis á Alþjóðaþingi.

Keppnisreglur og skilyrði.

• Keppnin er opin grunnskólanemendum sem verða 11, 12 eða 13 ára fyrir  20. nóvember 2025 ( hér á landi passar  keppnin best fyrir 7. bekk).

Fæðingardagur sem skráður er í  keppnisgögnin gildir.

• Þema breytist árlega.

• Listaverkið skal ekki vera minna 33cm x 50cm og ekki stærra en 50cmx60cm  Lions getur útvegað pappír í réttri stærð ef skólarnir eiga ekki möguleika á því. Ekki má ramma inn listaverkin eða festa þau á plötu.

• Aðeins má skila inn einu verki á hvern nemanda og hvert verk verður að vera unnið af einum nemanda.

• Öll listaverk verða að vera eigin sköpun nemandans. Einungis frumrit eru tekin gild.

• Allir málunarmiðlar eru leyfðir. Athugið: verja skal krít, kol og pastel verk með hlífðarúða (fixative) til að koma í veg fyrir kám. Ekki má plasta verkin.

• Ekki verður tekið við þrívíðum verkum. Ekkert má líma, hefta eða festa við listaverkin á nokkurn hátt.

• Notkun bókstafa eða númera framan á veggspjaldið, á hvaða tungumáli sem er, er ekki leyfð. Skrifa skal allar undirskriftir eða upphafsstafi listamanna aftan á veggspjaldið.

• Listaverkin ætti að gera á sveigjanlegu efni, svo hægt sé að rúlla því til sendingar í hólki. Ekki brjóta listverkið saman.

Lokadagsetningar

Þau verk sem ekki uppfylla þessar dagsetningar og skilyrði verða dæmd frá keppni.

Síðasti skiladagur til Lions er 20.nóvember. 2025

1.febrúar. 2026 fá vinningshafar tilkynningu þennan dag eða fyrr. 

Vinsamlega sendið þátttökutilkynningu á netfangið annakristingunnlaugs@gmail.com