Lions á Íslandi 75 ára 14.ágúst 2026

Lions á Íslandi 75 ára 14.ágúst 2026

Við eigum afmæli í dag!

Í dag 14. ágúst er Lions á Íslandi og Lionsklúbbur Reykjavíkur, 75 ára. Í tilefni þess byrjum við afmælisárið með að leggja blómsveig að leiði Magnúsar Kjaran, stofnanda Lionsklúbbs Reykjavíkur.

Frú. Soffía Franzdóttir Siemsen og Magnús Kjaran

Óskum við klúbbfélögum í Lionsklúbbi Reykjavíkur sem og okkur öllum Lionsfélögum á Íslandi til hamingju með daginn. 75 ár eru sannarlega mikilvæg tímamót og þeim ber því að fagna.

Við í fjölumdæmisstjórn stefnum á að halda upp á tímamótin með einhverjum hætti í vetur og verður það auglýst með góðum fyrirvara.

Inga Lóa Steinarsdóttir fjölumdæmisstjóri, Einar Hilmarsson umdæmisstjóri 109A og Sigríður G. Friðriksdóttir umdæmisstjóri 109B