Ekki missa af neinu hjá Lions og skráðu netfangið þitt á póstlistann.
Fylgdu okkur á facebook
- Styrkja LCIF
- Um Lions
- Klúbbar
- Verkefni
- Minningar
- Lionsbúðin
- Fræðsla
- Lionssalurinn
- NSR
Sjúkrastofnanir í Úkraínu eru undir gríðarlegu álagi og verða að auki fyrir beinum árásum. Særðir og alvarlega veikir einstaklingar njóta forgangs. Því hefur þurft að vísa barnshafandi konum frá og fæðingarhjálp hefur færst út í samfélagið.
Í byrjun október var nýju LCIF verkefni „BABY-Lifeline“ hleypt af stokkunum. BABY-Lifeline er neyðarbúnaður fyrir fæðingarhjálp, bakpoki sem hefur að geyma allt sem þarf til við barnsfæðingu, bæði fyrir móður og barn. Ljósmóðirin setur pokann á bakið og heldur á vettvang, sem oft á tíðum er neðanjarðar byrgi eða aðrar bágar aðstæður sem fyrir okkur eru nánast óhugsandi fyrir barnsfæðingu.
Hver bakpoki kostar 175.000.- kr. Okkar fyrsta markmið er að safna fyrir 50 bakpokum. Reikningsnúmerið er 0516-26-007722 kt. 640572-0869 merkjum framlagið BBLL.