Stefnt er að því að hleypa birkifræjaverkefninu formlega af stokkunum þann 16.september.

Lions hefur skrifað undir viljayfirlýsingu við Land og skóg um áframhaldandi þátttöku í verkefninu ,,Söfnum og sáum birkifræi´´. 

🌿 ALLIR GETA TEKIÐ ÞÁTT!

Lionsfélagar, fjölskyldur og vinir -  börn, barnabörn og fólk á öllum aldri – geta tekið þátt í þessu gefandi verkefni. 

🔎 Sjónrænt mat á magni birkifræja.

Kæru félagar leggjum einnig lið í könnun fræmyndunar á birkifræjum sem eru í þínu umhverfi.

Nú er hafin vinna við að kortleggja hversu mikið birkifræ finnst á trjám vítt og breitt um landið.  Óskað er eftir aðstoð félaga í skógræktarfélögum um allt land við að kannafræmyndun á birkitrjám á félagssvæðum sínum.

Skoðaðu birkitré á þínu svæði og mettu sjónrænt hversu mikið birkifræjum / reklum eru á trjánum.

📩 Vinsamlegast sendu upplýsingar um niðurstöðuna sem fyrst til

umhverfisstjóra Lions, dsf@simnet.is

📅Stefnt er að því að hleypa verkefninu formlega af stokkunum á degi íslenskrar náttúru 16 september.  Nánari upplýsingar verða kynntar félagsmönnum í gegnum netfangslista, á heimasíðu hreyfingarinnar og á Facbook síðu hennar.

🌱 Tökum höndum saman og söfnum birkifræi um allt land!

Lions – fyrir náttúruna og komandi kynslóðir.

Fyrir hönd umhverfisnefndar.

Dagný S. Finnsdóttir,

Umhverfisstjóri MD 109

Lionsklúbbnum Úu Mosfellsbæ.