Skýrsluskil skráning í Lions Portal

Lion Portal er tæki þar sem klúbbar skrá allt það sem þeir gera sem Lion. Þannig má sjá hvað klúbburinn hefur afrekað og sagan geymist á einum stað.

Verkefni Lions klúbba geta verið fjölbreytt og gaman er að geta státað af góðum verkefnum.

Að hafa verkefni í klúbba sýnileg undirbýr líka jarðveginn við að afla nýrra félaga.

Farið í er eftirfarandi:

  1. Innskráning- að stofna aðgang inn á Lion Portal.
  2. Skoðum uppsetninguna á Lion Portal.
  3. Virkniskýrslur - Skráum virkni/verkefni klúbbsins, s.s. fundi hverskonar, verkefni, t.d. blóðsykurmælingar (fjölda sem tók þátt, fjölda þeirra sem voru mældir), fjáraflanir og styrkveitingar.

Aðeins 1 félagi getur notað hvert netfang. Gott er að tryggja að rétt netfang sé skráð nú þegar inn á Lion Portal og hvernig nafnið þitt er skráð (íslenskir stafir eða ekki). Kolfinna og Sæunn á Lions skrifstofunni geta athugað það fyrir ykkur.

Þú þarf að geta hoppað á milli Lion Portal og tölvupóstsins þíns.

Þú getur notað símann og tölvuna ef þú hefur ekki aðgang að tveimur skjáum, til að bæði fylgjast með kennslunni og til að skrá þig inná Lion Portal.