Orkester Norden á Íslandi 2026

Orkester Norden

                                                                       

er vettvangur fyrir unga hljóðfæraleikara frá Norðurlöndum og Eystrasalts löndunum til að þróa og skapa tónlist saman – með framlagi frá þekktustu tónlistarmönnum og tónskáldum, sem vilja deila reynslu sinni og þekkingu. Markmiðið er að gefa ungu hljóðfæraleikurunum þau verkfæri sem þeir þurfa til að taka virka ábyrgð á tónlist sinni og eigin ferli – samtal sem þarf að eiga sér stað í tónlistarumhverfi, með framtíðarsýn og víðara sjónarhorn.

Orkester Norden er er samstarfsverkefni Lionsumdæmanna á Norðurlöndunum, NSR. Frekari upplýsingar um hljómsveitina má finna á https://www.orkesternorden.com

Frá upphafi, eða í yfir 30 ár, hafa fjölmargir ungir íslenskir tónlistarmenn notið góðs af elju og dugnaði Lionsfélaga á hinum Norðurlöndunum og nú er komið að okkur að þakka fyrir gestrisnina og bjóða þeirra unga fólki að heimsækja okkur – einu sinni.

Orkester Norden verður á Íslandi í sumar frá 16.07.2026 til 28.07.2026. Æfingabúðirnar verða á Akureyri frá 17.07.2026 til 25.07.2025 en þá verða tónleikar í Hofi á Akureyri. Síðan fer hljómsveitin til Reykjavíkur og mun halda lokatónleika í Eldborg í Hörpu 27.07.2025

Verkefnið er æfingabúðir og tónleikahald fyrir ungt hæfileikaríkt tónlistarfólk sem hefur lagt mikið á sig í tónlistarnámi. En þetta er líka tækifæri til að þroskast, kynnast og læra að vinna með öðrum þvert á landamæri. Þátttakendur eru frá öllum Norðurlöndunum og Eystrasaltslöndunum. Margir af okkar fremstu tónlistarmönnum starfandi bæði hér heima og út um allan heim voru á yngri árum þátttakendur í Orkester Norden.

Fjölmargir styrktaraðilar koma að verkefninu m.a. Akureyrarbær, Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús, Norrænir styrktarsjóðir, Nordic Kulturfond, Anne Maria and Carl Nielsen foundation og innlendir fyrirtækjasjóðir ásamt verkefnasjóði Lionshreyfingarinnar á Íslandi.

Fyrir utan Lions styrkja eftirtaldir aðilar Orkester Norden

https://nielsen-legat.dk/about-the-fund/

Carl and Anne Marie Nielsen sjóðurinn.

Tónskáldið Carl Nielsen og dætur myndhöggvarans Anne Marie Carl-Nielsen, Irmelin Egger Møller og Anne Marie Telmanyi, stofnuðu árið 1957 Carl Nielsen og Anne Marie Carl-Nielsen's Foundation til minningar um foreldra sína.

Stofnunin á 2/3 af listamannaréttindum eftir Carl Nielsen og öll réttindi eftir Anne Marie Carl-Nielsen. Fjármagn sjóðsins er aðallega stofnað á grundvelli tekna af listamannaréttindum. Á hverju ári veitir stofnunin stærstu heiðursverðlaun Danmerkur til danskra listamanna. Annað hvert ár til tónlistarmanna og tónskálda og á hverju ári til myndhöggvara. Auk þess veitir stofnunin fimmtán hæfileikaverðlaun á ári til ungra tónlistarmanna, tónskálda og myndhöggvara. Auk þess styður stofnunin ýmis verkefni með það að markmiði að vekja athygli fólks á listsköpun Carl Nielsen og Anne Marie Carl-Nielsen.

https://nordiskkulturfond.org/en

Menning mótar framtíð Norðurlandanna

Í gengum styrkjaleiðir Norræna menningarsjóðinn(Nordisk Kulturfond) , samstarfi og menningarstefnu örvar Norræni menningarsjóðurinn þróun list- og menningarlífs og tryggir sveigjanlegar ramma fyrir ný þverþjóðleg samstarf.

https://www.akureyri.is

Akureyrarbær

Helstu markmið menningarstefnu Akureyri eru í grundvallaratriðum skýr og einföld; að styðja menningarstarfsemi svo hún blómstri, þróist og sé stöðugt óvænt.

Sveitarfélagið Akureyri vill leggja sérstaka áherslu á þátttöku ungs fólks í listum og skapandi greinum. Markmiðið er að veita vettvang fyrir ungt fólk sem kýs að njóta menningarstarfa allt árið um kring

 

Saga Orkester Norden

 Orkester Norden 

 carlnielsen  nordisk kulturfond