Ekki missa af neinu hjá Lions og skráðu netfangið þitt á póstlistann.
Fylgdu okkur á facebook
- Styrkja LCIF
- Um Lions
- Klúbbar
- Verkefni
- Minningar
- Lionsbúðin
- Fræðsla
- Lionssalurinn
- Lionsþing 2026

Uppsveitaklúbbar Lions í Árnessýslu bjóða til 71.þings 109 á Laugarvatni.
Hið sjötugasta og fyrsta þing Lionsumdæmis 109 verður haldið á Laugarvatni í Bláskógabyggð dagana 29. og 30. maí næstkomandi. Það er í fyrsta sinn sem sá heiður hlotnast efri byggðum Árnessýslu. Ekkert er að vanbúnaði að halda slíkan viðburð á Laugarvatni. Myndarlegur húsakostur og annað sem til þarf er til staðar og ekki spillir fallegt umhverfi og náttúruperlur í nágrenninu. Fjórir klúbbar í Árnessýslu munu standa að þinghaldinu og verða gestgjafar. Það eru Lionsklúbbur Laugardals, Lionsklúbburinn Geysir, Lionsklúbburinn Dynkur og Lionsklúbburinn Skjaldbreiður.
Fjölumdæmisþingið verður haldið í íþróttahúsinu á staðnum. Það er vegleg og mjög rúmgóð bygging. Þar verður lokahófið einnig haldið. Hljómsveitin Sunnan 6 mun leika fyrir dansi. Umdæmisþingin í báðum umdæmum verða haldin í skólastofum menntaskólans. Þar verða einnig skólar embættismanna og afhending þinggagna. Snæddur verður hádegisverður í matsal skólans. Matur verður að hætti Svenna kokks. Stefnt er að því að skrúðgangan haldi frá Menntaskólanum að íþróttahúsinu þar sem þingsetning fer fram.
Afhending þinggagna mun fara fram í Menntaskólanum að Laugarvatni á fimmtudagskvöldi 28. maí kl. 19-21 og frá kl. 9:00 á föstudeginum og laugardeginum.
Kynningarkvöld verður að vanda á föstudagskvöldinu og fer það fram í gamla Héraðsskólanum, einu glæsilegasta húsi landsins.
Að vanda verður boðið uppá makaferð á laugardeginum undir leiðsögn heimamanna. Gert ráð fyrir að hún standi frá kl. 11:00 til 15:30. Borðað verður í ferðinni og þarf fólk að hafa með sér matarmiða.
Lokahófið verður haldið í íþróttahúsinu. Boðið verður uppá hátíðarkvöldverð og dansleik með hljómsveitinni Sunnan 6. Þess ber að geta að fjölumdæmið mun koma myndarlega að og greiða niður lokahófið um 7.000 kr. pr. félaga.
Gisting verður í heimavistum Menntaskólans á staðnum. Hún verður tilbúin frá fimmtudagskvöldi 28 maí.
EKKI verður boðið upp á hjólhýsa og húsbílastæði.
Á Laugarvatni er ýmsa afþreyingu að finna, svo sem sundlaug, baðstaðinn Fontana og nokkra veitingastaði, auk fallegra gönguleiða.
Allir fullgildir Lionsfélagar, þótt þeir séu ekki kjörnir þingfulltrúar, eiga rétt á setu á umdæmis- og fjölumdæmisþingi sem áheyrnarfulltrúar.
Það er okkur félögum í Lionsklúbbi Laugardals, Geysi, Dynk og Skjaldbreið mikill heiður að taka á móti þingfulltrúum og öðrum gestum á 71. þingi Lionshreyfingarinnar í lok maí næstkomandi.
Við vonumst eftir ykkur sem flestum, Lionsfélagar og makar. Við höfum mikla trú á að þingið verði virkilega ánægjulegur viðburður
Fyrir hönd þingnefndar
Kristófer Tómasson Lkl. Geysi.