Um Lions

Lions er stærsta alþjóðlega þjónustuhreyfing heims, stofnuð í Bandaríkjunum 1917. Í dag starfa yfir 1,4 milljónir Lions-félaga, í 46.000 Lionsklúbbum í 206 löndum. Lions er óháð stjórnmálaflokkum og trúfélögum. Í Lions er farvegur umræðna sem efla og þroska.

Lögð er áhersla á vináttu félaganna og fjölskyldna þeirra. Vináttan er undirstaða að starfi Lionsklúbba. Lionsfélagar er tryggur vinahópur, sem stendur saman og styðja hvern annan. Í Lions eignast margir sína bestu vini.

Í Lions öðlast félagar félagslega þjálfun og þar fer einnig fram markviss fræðsla. Í Lions eru  mörg tilboð um fræðslu og gagnast hún ekki aðeins til starfa í Lions, heldur einnig í atvinnulífinu og í daglegu lífi. Lions býður upp á fjölbreytt félagslíf, fræðslu, skemmtanir, verkefni, fundi og ferðalög með vinum og fjölskyldum.

Í þínu byggðarlagi starfar e.t.v. Lions-klúbbur, sem þú gætir átt samleið með. 

Viltu mæta á kynningarfund?

 

Viltu verða félagi í Lions?