THE INTERNATIONAL ASSOCIATION OF

LIONS CLUBS

Lionsumdæmið á Íslandi MD 109

Sóltúni 20 - 105 Reykjavík - sími  561 3122 - fax 561 5122 - netfang: lions@lions.is

Opnunartími skrifstofu: 9:00 - 15:00 alla virka daga

Verkefni

 

Vilt þú kynnast Lionshreyfingunni?
Skoðaðu þetta!

 Saga hreyfingarinnar

 Klúbbastarf

 Verkefni Lions

 Hafðu samband.

Ýmsar upplýsingar

 English page


 Umdæmi 109 A

 Umdæmi 109 B

 Stjórn og ársskýrslur

 Þing Lionshreyfingar

 Markmið og reglur

 Yfirstjórn 1954 -2009


 Lionsblaðið

 Fréttir frá klúbbum

 Aðsendar greinar


 Alþjóðasamskipti

 Lions Quest

 SightFirst II

 Rauða fjöðrin


 Lionsfræðslan


 Handbók formanns

 Handbók ritara

 Svæðisstjórasíða.

 Mánaðarskýrslur

 Lionsmerkið

   MedicAlert á Íslandi

Alþjóðasíður

Lions International (2280 bytes)

LCIF

LionNet (2290 bytes)

     Netverslun með
     Lionsvörur

   Lions Sverige
   Lions Norge
   Lions Finland
   Lions Danmark

   NSR 2010

 

Klúbbar á netinu

    Lkl. Agla
    Lkl. Akureyrar
    Lkl. Álftaness
    Lkl. Ásbjörn
    Lkl. Bolungarvíkur
    Lkl. Borgarness
    Lkl. Eik
    Lkl. Fjörgyn
    Lkl. Grindavíkur
    Lkl. Grundarfjarðar
    Lkl. Húsavíkur
    Lkl. Kaldá
    Lkl. Keilir

    Lkl. Kópavogs
    Lkl. Mosfellsbæjar
    Lkl. Muninn
    Lkl. Múli
    Lkl. Njarðvíkur
    Lkl. Njörður 
    Lkl. Patreksfjarðar 
   
Lkl. Rán
    Lkl. Seyðisfjarðar
    Lkl. Siglufjarðar
    Lkl. Skyggnir
    Lkl. Stykkishólms
    Lkl. Týr
    Lkl. Úa, Mosfellsbæ
    Lkl. Váli
    Lkl. Vestmannaeyja
    Lkl. Víðarr
    Lkl. Þór
    Lkl. Æsa

 


Verkefni Lionshreyfingarinnar á Íslandi

Klúbbar velja verkefni sjálfir; þeir styðja fyrst og fremst sitt eigið byggðarlag, en taka einnig þátt í landsverkefnum í umsjón fjölumdæmisráðs eða stjórna umdæmanna. Þessi verkefni eru bæði innlend og alþjóðleg.

Af innlendum verkefnum má nefna rauðu fjöðrina, unglingaskipti, umhverfismál, vímuvarnar- mál Lions-Quest, MedicAlert o. fl. Af samnorrænum verkefnum má meðal annars nefna Orkester Norden og uppbyggingu heimilis fyrir fötluð, munaðarlaus börn í í Friazino við Moskvu í Rússlandi. Af alþjóðlegum verkefnum má nefna Alþjóða hjálparsjóð Lionshreyfingarinnar (LCIF) og sjónverndarverkefni (Sight First), en sjónvernd hefur verið eitt af stærstu verkefnum hreyfingarinnar frá upphafi

Íslenskir Lionsfélagar sinna ungum sem öldnum, sjúkum, sjóndöprum og fötluðum. Einnig ýmsum verkefnum tengdum umhverfismálum, skólamálum og menningu.

Lionsmenn gefa tíma sinn og umhyggju eða afla fjár m.a. til tækjakaupa eða fjárstuðnings til þeirra sem minna mega sín.

Tenglar með nánari upplýsingum um verkefni Lions.

Skrifstofa Lionshreyfingarinnar á Íslandi veitir allar nánari upplýsingar um hvern málaflokk eða vísar á tengiliði.

Sími 561 3122 og netfang: lions hjá lions.is


Rauða fjöðrin

Lionshreyfingin hefur átta sinnum staðið fyrir landssöfnunum til ákveðinna verkefna með því að selja rauða fjöður. :
Þessi verkefni eru:

1972 - Til stofnunar augnlækningadeildar Landakots

1976 - Til kaupa á tannlækningatæki til viðgerða á tönnum þroskaheftra landsmanna.

1980 - Til kaupa á tæki til eyrnlækningadeildar Borgarspítala.

1985 - Til kaupa á línuhraðli fyrir Landspítala.

1989 - Til byggingar vistheimilis að Reykjalundi fyrir ungmenni með varanlega fötlun.

1995 - Til stofnunar Rannsóknarstofu i gigtarsjúkdómum.

1999 - Til eflingar öldrunarþjónustu hvers konar, að hluta til sameiginlega með hinum Norðurlöndunum. 

2004 - Söfnun undir kjörorðinu "Léttum þeim lífið"  fyrir langveik börn.

2008 - Söfnun til kaupa á leiðsöguhundum fyrir blinda.

 

Til baka


Unglingaskipti

Unglingaskipti Lions er eitt stærsta alþjóðlega verkefni Lionshreyfingarinnar. Ungu fólki er gefinn kostur á að kynnast daglegu lífi, starfi og menningu annarra þjóða með því að búa hjá fjölskyldum Lionsmanna í öðrum löndum. Árlega fara 15-20 íslenskir unglingar til nokkurra vikna dvalar erlendis og álíka margir koma hingað til lands.

Hefurðu áhuga á unglingaskiptum?

Skrifstofa Lionshreyfingarinnar á Íslandi veitir allar nánari upplýsingar um hvern málaflokk eða vísar á tengiliði.

Sími 561 3122 og netfang: lions hjá lions.is

Til baka


Umhverfismál. 

Við fengum jörðina ekki í arf frá forfeðrum okkar, við höfum hana að láni frá börnunum okkar.” (Máltæki frá Kenýa)

Umhverfisboðorðin þrjú: 

Drögum úr úrgangi

Endurvinnum þegar það er mögulegt

Endurnýtum í stað þess að henda 

Árið 1972 samþykkti alþjóðastjórn Lions stefnuyfirlýsingu í umhverfismálum. Þar segir m.a: “Lionshreyfingin er ein þessara alþjóðastofnana sem ættu að leggja fram krafta sína til að bæta og vernda umhverfið til hagsbóta fyrir alla menn og afkomendur þeirra.” 

Á Fjölumdæmisþingi Lions á Íslandi 1999 var samþykkt eftirfarandi ályktun um umhverfismál:

1.         Að hvetja alla Lionsfélaga að halda áfram að vinna að umhverfismálum.

2.         Að hvetja Lionsfélaga að njóta leiðsagnar skógræktarfélaga og annarra samsvarandi félaga sem vinna að uppgræðslumálum.

3.         Að önnur helgin í júní árlega verði notuð af Lionsmönnum til gróðursetningar eða annarra umhverfisverkefna. 

Lionshreyfingin á Íslandi átti þátt í stofnun Landverndar 1969 og hefur tekið þátt í verkefnum eins og Á grænni grein, átaki í landgræðslu 1990, og átaksverkefninu Fegurri sveitum 2000-2002.

Margir Lionsklúbbar eru með sérstök umhverfisverkefn t.d;

-           trjárækt og uppgræðslu lands 

-           að hreinsa og snyrta svæði                                                  

-           að merkja sögufræða staði og leiðir

-           að safna birkifræjum fyrir Landgræðslu ríkisins 

auk þess sem einn ágætur Lionsklúbbur hefur unnið að því að gera við “ónýt” sjúkrarúm og hjólastóla og koma þeim í umferð á ný.

Góður árangur grasrótarverkefna í umhverfismálum hvetur aðra hópa til dáða og áhrifin verða margföld.

Skrifstofa Lionshreyfingarinnar á Íslandi veitir allar nánari upplýsingar um hvern málaflokk eða vísar á tengiliði.

Sími 561 3122 og netfang: lions hjá lions.is

Til baka


Lions-Quest – námsefni í lífsleikni

Lions-Quest verkefnið hefur verið samstarfsverkefni Lionshreyfingarinnar á Íslandi og Námsgagnastofnunar til margra ára. Í verkefninu felst útgáfa á námsefninu Að ná tökum á tilverunni og námskeiðahald fyrir kennara og aðra sem ætla að nýta efnið í vinnu með ungu fólki. Í sátt og samlyndi er annað Lions-Quest námsefni sem einnig tilheyrir verkefninu.
Alþjóðhreyfing Lionsklúbba og fræðslustofnunin Quest International hófu samstarf um útgáfa námsefnis í lífsleikni árið 1984. Frá þeim tíma hefur Lions-Quest námsefni verið gefið út í fjölmörgum löndum og heimsálfum og verið þýtt á fjölda tungumála.
Að ná tökum á tilverunni er ætlað 11 til 14 ára nemendum. Námsefnið hæfir vel þeim markmiðum sem sett eru fram í Aðalnámskrá grunnskóla, lífsleikni 1999 varðandi þætti sem snúa að félags- og tilfinningatengdri hæfni nemenda. Í efninu er sérstök áhersla á jákvæðan og heilbrigðan lífsstíl og það nýtist vel tengslum við fíkniefnavarnir í skólum.
Námsefnið Í sátt og samlyndi hentar 13 til 15 ára nemendum og þjálfar samskiptahæfni. Því er m.a. ætlað að fyrirbyggja ofbeldi og einelti.
Lionshreyfingin hefur haft það að markmiði að vinna lífsleikni brautargengi í skólum með því að styðja við Lions-Quest verkefnið.

Söguleg atriði:
1987        Samþykkt á fjölumdæmisþingi að Lionshreyfingin vinni að þessu verkefni.

1988        Fyrsta námskeiðið á Íslandi og tilraunakennsla hefst í tíu skólum á vegum menntamálaráðuneytisins.
1990        Námsefnið gefið út hjá Námsgagnastofnun.
1998        Í sátt og samlyndi gefið út hjá Námsgagnastofnun.
2000        Lions-Quest námsefni þýtt á tíu tungumál og kennt í yfir 30 löndum.
2001        Ný og endurbætt útgáfa af Að ná tökum á tilverunni með smásögum eftir íslenska höfunda.
2002        Alls verið haldin 48 námskeið með 1275 þátttakendum.

Lions Quest Heimasíða

Skrifstofa Lionshreyfingarinnar á Íslandi veitir allar nánari upplýsingar um hvern málaflokk eða vísar á tengiliði.

Sími 561 3122 og netfang: lions hjá lions.is

Til baka


Alþjóðahjálparsjóður Lions
LCIF

Alþjóðahjálparsjóður Lions er þýðing á enska heitinu Lions Clubs International Foundation, sem er skammstafað LCIF. Þegar Lionshreyfingin hafði starfað rösklega hálfa öld og breiðst víða um heim, tóku menn að gæla við þá hugmynd að stofna sérstakan alþjóðlegan hjálparsjóð Lionshreyfingarinnar. Sjóð sem miðlaði framlögum Lionsklúbba til Lions verkefna, sjóð sem væri þess megnugur að lyfta grettistaki á fjölmörgum sviðum líknar og mannúðarmála víðsvegar um heiminn Þessi draumur forystumanna hreyfingarinnar varð að veruleika árið 1968 með stofnun Alþjóðahálparsjóðs Lions, sem er þýðing á enska heitinu Lions Clubs International Foundation, sem er skammstafað LCIF.

Ekki voru skrefin stór fyrstu árin. Það tók sjóðinn fimm ár að vaxa svo, að hægt væri að veita framlög úr honum. Starfsárið 1972-1973 námu fyrstu framlögin milli 4 og 5 milljónum króna. En mjór er mikils vísir. Sextán árum síðar námu framlögin til breytilegra verkefna um 570 milljónum króna. Af þeirri fjárhæð fóru um 40% til sjónverndarbaráttu gegn blindu, en allt frá upphafi Lionshreyfingarinnar hefur sjónvernd verið efst á lista þeirra verkefna sem hreyfingin hefur unnið að.
Miklum fjármunum hefur verið beint að rannsóknarverkefnum, einkum þó á sykursýki, sem víða er mikill bölvaldur og hefur til þessa verið ólæknanleg. Sjúkdómur þessi veldur í mörgum tilfellum blindu, einkum þó meðal vanþróaðra þjóða, þar sem litla læknishjálp er að fá.

SightFirst

Stærsta verkefnið á sviði sjónverndar er þó hin nýja áætlun sem nefnd hefur verið í SightFirst„ og samþykkt var á alþjóðaþingi Lions sem haldið var í Borginni St. Louis í Bandaríkjunum sumarið 1990. Áætlun þess verkefnis byggist á könnun sem kostuð var af Lionshreyfingunni og leiddi í ljós að þótt takast mætti að lækna 80% blindu í heiminum eða koma í veg fyrir hana með fyrirbyggjandi aðgerðum væru30-40 milljónir manna blindar og mun sá fjöldi trúlega tvöfaldast á næstu 25 árum ef ekkert verður að gert. Á árunum 1991-1994 náðist að safna 146 milljónum dollara til þessa verkefnis og fór söfnunin fram úr björtustu vonum.

Framlög í sjóðinn.

Framlög í sjóðinn eru frjáls og koma frá Lionsklúbbum víðs vegar um heiminn. Einnig geta einstaklingar, stofnanir og félagasamtök utan Lions lagt sjóðnum lið. Öll framlög ganga til líknar- og mannúðarmála. Rekstrarkostnaður greiðist eingöngu af vaxtafé. Um það bil helmingur framlaga til sjóðsins er tengdur tilnefningu Melvin Jones Félaga. Hér er um að ræða viðurkenningu sem kennd er við Melvin Jones, stofnanda Lionshreyfingarinnar. Lágmarksframlag vegna tilnefningar Melvin Jones Félaga er 1.000- bandaríkjadollarar. Fólk utan hreyfingarinnar getur orðið Melvin Jones Félagar og má geta þess að Vigdís Finnbogadóttir, Björk Guðmundsdóttir og Davíð Oddsson eru öll Melvin Jones félagar. Nú eru vel á 3. hundrað Melvin Jones félagar á Íslandi

Framlög til Íslands

Íslendingar hafa fengið framlög úr sjóðnum. Vegna náttúruhamfara, í Vestmannaeyjum 1973 og framlög vegna snjóflóðanna á Súðavík og Flateyri, jarðskjálfta á Suðurlandi. Þá hefur sjóðurinn veitt styrki til kaupa á ómskoðunartæki fyrir krabbameinsrannsóknir á Landsspítalanum og við að ljúka við byggingu Lionshússins Hleins við Reykjalund, veitt framlög í L.Q. námsefnið, styrkt Leiðtogaskóla Lions og m.fl.   Nú síðast 2004 í búnað fyrir hjartsláttartruflnir, sem Lkl. Víðarr stendur fyrir.

Skrifstofa Lionshreyfingarinnar á Íslandi veitir allar nánari upplýsingar um hvern málaflokk eða vísar á tengiliði.

Sími 561 3122 og netfang: lions hjá lions.is

Til baka


Alþjóðasamskipti

Í markmiðum Lionsklúbba er fyrsta markmið að vekja og efla anda skilnings á meðal þjóða heims. Annað af markmiðum Lions er einnig að tengja klúbbana böndum vináttu góðs félagsanda og gagnkvæms skilnings.

Til að ná þessu takmarki hefur Lionshreyfingin meðal annars stuðlað að þessu með því að stofna hjálparsjóðinn LCIF. Þessi hjálparsjóður hefur komið að notum á mörgum stöðum t.d. í sjónverndarátaki okkar þar sem söfnuðust 146 milljónir dollara og takmarkið er að lækna allt að 80% þeirra sem eru blindir í heiminum í dag. Við vitum að um 40 milljónir eru blindir og unnt er að lækna rúmlega 30 milljónir þeirra.
Helstu orsakir blindu eru: Ský á auga, cataracta, fljótablinda, gláka og A-vítamínskortur. Nú þegar hefur tekist að lækna á 3. milljón manns sem eru með blindu, mest með aðgerðum vegna skýs á auga og einnig fyrirbyggjandi aðgerðum.
Alþjóðleg verkefni á vegum Fjölumdæmis.
Þar má nefna barnaheimilið í Gorsaw í Póllandi þar se gefin voru tæki til þess að endurhæfa fjölfötluð börn. Lionshreyfingin á Íslandi leggur til að hreyfingin á Norðurlöndum taki sig saman um að veita Eistlandi, Lettlandi, Litháen og Póllandi aðstoð sína. Má nefna sem dæmi að Lionshreyfingin í Danmörku veitti Pólverjum umtalsverða aðstoð 1989 m. a. með því að senda 7 vöruflutningalestir með matvælum, fötum og öðrum nauðsynjavörum. Um jól sama ár voru sendir 5 þúsund matarpakkar til Póllands. Í löndum þiggjanda búa um það bil 50 milljónir manna en Norðurlandabúar eru um það bil 23 milljónir.
Alþjóðleg verkefni á vegum umdæma, svæða og klúbba.
Hér má nefna t.d. vinaklúbbatengsl, þar sem Lionsklúbbar eiga vinaklúbba í öðrum löndum, s.s. Danmörku, Svíþjóð, Noregi eða Finnlandi. Lions Quest er dæmi um verkefni þar sem stuðningur og samvinna milli landa um að vinna að þessu mikilvæga forvarnarstarfi í baráttu gegn vímuefnum.
Unglingaskipti
Markmiðið með að senda unglinga okkar til annarra landa er að víkka sjóndeildarhring þeirra og að þeir átti sig á því hvernig bæði nágrannaþjóðir okkar og aðrar þjóðir heims lifa og starfa.
Lionshreyfingin hefur innan sinna vébanda rúmlega 1,4 milljón félaga auk Lionessa og Leo félaga. Með því að allir klúbbar leggi sitt að mörkum þá getum við unnið talsvert átak á sviði alþjóðasamskipta. þetta hefur tekist vel hingað til og á vonandi eftir að ganga svo til í framtíðinni.

Nánari upplýsingar má fá á sérstakri alþjóðasamskiptasíðu með því að smella hér.

Til baka


MedicAlert®
Aðgát vegna sjúkdóms

MedicAlert® var stofnað í Bandaríkjunum árið 1956. Merkisberar í dag eru langt yfir fimm milljónir manna um allan heim. Talið er að frá stofnun MedicAlert® hafi merkið bjargað yfir 100.000 mannslífum.
Stofndagur MedicAlert® á Íslandi var 30. janúar 1985. Aðildarfélög eru: Lionshreyfingin á Íslandi,
Blæðarafélag Íslands, FAAS - Félag aðstandandenda Alzheimerssjúklinga, Gigtarfélag Íslands, Hjartaheill - Landssamtök hjartasjúklinga, Lauf - landssamtök áhugamanna um flogaveiki, Mígrensamtökin, Samtök sykursjúkra, SÍBS, og Sjálfsbjörg - landssamband fatlaðra. 
Á fimmta þúsund einstaklingar á Íslandi bera nú MedicAlert® öryggismerkið. Margir eru haldnir sjúkdómum sem geta versnað skyndilega án þess að gera boð á undan sér. Sumir sjúkdómanna eru þess eðlis að sjúklingurinn getur hvorki tjáð sig né leitað aðstoðar. Slíkt ástand getur valdið örlagaríkum drætti á því að sjúklingurinn fái rétta eða viðeigandi meðferð. Í versta tilfelli getur slíkt ástand valdið varanlegum skaða eða jafnvel dauða.

MedicAlert® er kerfi sem kemur til hjálpar í neyðartilfellum.

MedicAlert® er ódýr líftrygging

MedicAlert® er fyrst og fremst sniðið fyrir sjúklinga, en það er ekkert sem mælir gegn því að heilbrigðir beri líka MedicAlert® merki til öryggis eða sem ígildi persónuskilríkja.

MedicAlert® getur bjargað mannslífi.

MedicAlert® eyðublað fyllir læknir út og umsækjandi undirritar ásamt lækninum.

MedicAlert® umsókn er síðan komið á skrifstofu Lions, Sóltúni 20, 105 Reykjavík. Þar eru allar upplýsingar veittar. Síminn þar er 533 4567

MedicAlert® er lítið snoturt merki, annað hvort notað sem armband eða hálsmen. Á framhliðinni er merki MedicAlert® en á bakhliðinni er símanúmer vaktstöðvar á slysadeild Landspítalans, sjúkdómsgreining, hættuástand eða annað, sem viðkomandi sjúklingur vill vekja athygli á. Neðst er spjaldskrárnúmer merkisberans. Á vaktstöðinni er gjaldfrjáls símaþjónusta allan sólarhringinn. Auk merkisins ber merkishafi á sér spjald með nánari upplýsingum.

Fulltrúar Lionshreyfingarinnar í MedicAlert® eru:
     Magnús B. Einarsson, Lkl Mosfellsbæjar, formaður,

     Guðmundur Bjarnason, Lkl. Víðarri, ritari og
     Guðný Björnsdóttir, Lkl Engey, gjaldkeri.

                             Heimasíða MedicAlert® er www.medicalert.is   

Skrifstofa Lionshreyfingarinnar á Íslandi veitir allar nánari upplýsingar um hvern málaflokk eða vísar á tengiliði.

Sími 561 3122 og netfang: lions hjá lions.is

Til baka


Orkester Norden

Orkester Norden er eitt af mörgum norrænum samstarfsverkefnum Lionshreyfingarinnar. Upphafið á sér rætur í Svíþjóð á árunum 1986 - 1987, þegar þáverandi alþjóðaforseti fól sænskum Lionsfélaga, Lennart Fridén, að finna samnorrænt verkefni fyrir ungt fólk á aldrinum 15 -25 ára. Lennart, sem var skólastjóri við tónlistarskóla, datt strax í hug að sameina ungt fólk í tónlist með því að koma á laggirnar sinfóníuhljómsveit í hæsta gæðaflokki. Hann fékk til samstarfs Samband norrænu félaganna, Musik og Ungdom og Norræna menningarsjóðinn ásamt Lionshreyfingunni á Norðurlöndum.

Það var svo sumarið 1993 að fyrsta námskeiðið var haldið í Arvika í Svíþjóð en því lauk með tónleikaferð um Svíþjóð. Í hljómsveitinni voru 67 hljóðfæraleikarar, þar af 7 frá Íslandi. Fyrsta verkið sem hljómsveitin flutti var eftir Þorkel Sigurbjörnsson tónskáld.

Í mars árið 1994 var hljómsveitinni boðið á þing Norðurlandaráðs í Stokkhólmi, þar sem hún lék við afhendingu bókmennta- og tónlistarverðlauna ráðsins.

Sumarið 1994 voru 104 hljóðfæraleikarar í hljómsveitinni, þar af 17 frá Íslandi. Námskeiðið var haldið í Arvika en tónleikar voru haldnir í Svíþjóð, Osló og Danmörku.

Sumarið 1995 var námskeiðið haldið í Karis í Finnlandi, í hljómsveitinni voru 87 hljóðfæraleikarar, þar af 18 frá Íslandi. Tónleikar voru í Finnlandi , Kaupmannahöfn og Malmö.

Sumarið 1996 var námskeiðið aftur flutt til Arvika, í hljómsveitinni voru 96 hljóðfæraleikarar, þar af 10 frá Íslandi. Tónleikar voru haldnir í Noregi og einnig var leikið inn á geisladisk.

Sumarið 1997 verður námskeiðið í Svíþjóð og tónleikar verða haldnir þar.

Á þeim árum, sem Orkester Norden hefur starfað hafa Lionsklúbbar á Norðurlöndum greitt þátttökugjöld fyrir hljóðfæraleikarana og hafa tekið fé til þess úr verkefna- og líknarsjóðum klúbbanna. Hljóðfæraleikararnir hafa hins vegar þakkað fyrir sig með því að leika fyrir klúbbfélaga við sérstök tækifæri.

Árin 1993 - 1995 var Esa Pekka Salonen hljómsveitarstjóri listrænn ráðunautur hljómsveitarinnar, en 1996 tók hljómsveitarstjórinn Paavo J”rvi við því hlutverki. Hljóðfæraleikararnir eru valdir á þann hátt, að þeir leika fyrirfram ákveðin verkefni inn á kassettur sem sendar eru til framkvæmdaraðila hennar, Svenska Rikskonserter í Stokkhólmi. Síðan eru sett númer á kassetturnar, þær fengnar atvinnuhljóðfæraleikurum í Stokkhólmi sem síðan velja þá hæfustu til þátttöku. Því verður að segjast eins og er að við Íslendingar getum mjög vel við unað við fjölda okkar þátttakenda. Vonandi heldur hljómsveitin áfram að dafna og þróast í framtíðinni með dyggum stuðningi yfirvalda, Lionshreyfingarinnar og annarra frjálsra félagasamtaka.

Skrifstofa Lionshreyfingarinnar á Íslandi veitir allar nánari upplýsingar um hvern málaflokk eða vísar á tengiliði.

Sími 561 3122 og netfang: lions hjá lions.is

Til baka


Hjálparsjóður Lions

Hjálparsjóður Lions er til að veita neyðaraðstoð ef skjótt á að bregðast við í nafni Lionshreyfingarinnar á Íslandi vegan náttúruhamfara t.d. og  styrkir innlend og alþjóðleg verkefni.

Minningarkort Lions er aðalfjáröflunarleið sjóðsins, þau eru til afhendingar á Lionskrifstofuni og eiga að vera til í öllum klúbbum Lionshreyfinngarinnar.

Starfsárið 2008-2009 vorur veittir styrkir til Hjartaheilla og eineltisverkefnis Lkl.Úlfars í Grafarholti.

Styrkumsóknir berist til Guðmundar Finnbogasonar, formanns sjóðstjórnar, astgudm@simnet.is  s:8613894.

Skrifstofa Lionshreyfingarinnar á Íslandi veitir allar nánari upplýsingar um hvern málaflokk eða vísar á tengiliði.

Sími 561 3122 og netfang: lions hjá lions.is

Til baka

 

                                                                    Síðan uppfærð 30. september 2009

Lionshreyfingin á Íslandi - Sóltún 20 · 105 Reykjavík - Sími/tel.: (354) 561 3122 - Fax: (354) 561 5122
Netfang/e-mail:
lions hjá lions.is - Ritstjóri síðunnar: halldor hjá tv.is