|
Fundarstörf
Íslenskir Lionsklúbbar halda 1-2 fundi í mánuði.
-
Fundir eru venjulega haldnir að kvöldi til á virkum dögum
í 1 1/2 - 3 klst.
-
Á fundum er meðal annars fjallað um verkefni klúbbsins og
málefni hreyfingarinnar.
-
Fundir eru oft haldnir á veitingastöðum, í eigin fundarsal
og jafnvel í heimahúsum,
-
Á fundi koma oft gestafyrirlesarar, sem fjalla um ýmis mál
sem efst eru á baugi.
-
Fundir geta stundum verið í formi verkefnavinnu, heimsókna
eða ferðalaga.
-
Á Sumrin er lítið um hefðbundin
fundarstörf, en oft unnið að verkefnum sem tengjast náttúruvernd og útivist.
Félagslíf
Í Lionsklúbbum eignast margir sína bestu vini. Lögð er
áhersla á vináttu félaganna og fjölskyldna þeirra. Lionshreyfingin býður upp á
fjölbreytt félagslíf, ferðalög og skemmtanir með fjölskyldu og vinum.
Verkefni
Klúbbar velja verkefni sjálfir; þeir styðja fyrst og
fremst sitt eigið byggðarlag, en taka einnig þátt í landsverkefnum, en í því
sambandi má nefna rauðu fjöðrina sem seld er 4.-5. hvert ár. Einnig hafa íslenskir
Lionsfélagar tekið þátt í norrænum og alþjóðlegum verkefnum.
Íslenskir Lionsfélagar sinna ungum sem öldnum, sjúkum,
sjóndöprum og fötluðum. Einnig ýmsum verkefnum tengdum umhverfismálum, skólamálum
og menningu.
Lionsmenn gefa tíma sinn og umhyggju eða afla fjár m.a.
til tækjakaupa eða fjárstuðnings til þeirra sem minna mega sín. Dæmi:
-
skemmtikvöld fyrir aldraða
-
íþróttakeppni fyrir fatlaða
-
vímuvarnir - fræðsla og búnaður
-
fjárstuðningur til ungra tónlistarmanna
-
tækjakaup fyrir heilbrigðisstofnanir
-
bóka- og tölvukaup fyrir skóla
-
fjárstuðningur til rannsókna
-
skógrækt og landgræðsla
-
upplestur fyrir blinda
|
Dæmi um fjáröflunarleiðir:
Myndin hér
fyrir ofan sýna félaga úr Lkl. Suðra við pökkurn jólasælgætis.
Þingstörf
Íslenskir Lionsfélagar halda þing á hverju
vori. Þar er kjörin forysta næsta árs, teknar ákvarðanir um starfið og boðið upp
á ýmsa fræðslu, m. a. eru hladnir skólar fyrir embættismenn. Lionsfélagar af öllu
landinu kynnast, skiptast á skoðunum og skemmta sér.
Norrænt samstarf
Lionsfélagar á Norðurlöndum halda þing í
janúar ár hvert. Þar er skipulagt norrænt samstarf m. a. hjálparverkefni í
Eystrasaltslöndunum og í Rússlandi. Íslendingar skipulögðu aðstoð við
barnaheimili fyrir fötluð, munaðarlaus börn í Friazino við Moskvu.
Evrópskt samstarf
Evrópulöndin halda þing á haustin,
Evrópu-Forum, þar sem fjallað er m. a. um sérstök áhersluatriði í starfi
Evrópulandanna, svo sem unglingaskipti, alþjóðleg verkefni, vímuvarnir, umhverfismál
o. fl. þess háttar.
Alþjóðlegt samstarf
Alþjóðleg þing eru haldin á hverju sumri
og þau sækja 20-40 þúsund Lionsfélagar. Helen Keller kom á þing hreyfingarinnar
1925 og hvatti Lionsmenn til að gerast riddarar hinna blindu í krossferð gegn blindu.
Síðan hefur Lions unnið að sjónverndarmálum um allan heim.
|