Um Lionshreyfinguna
Lionsklúbbarnir eru
samtök, sem eru óháð stjórnmálaflokkum og trúmálafélögum, en inna af
hendi ýmiss konar þjónustu á sviði líknar- og mannúðarmála. Þeir eru
skipaðir athafnasömu og félagssinnuðu fólki.
Tilgangur
Lionsklúbbanna er annar og meiri en að efla félagsanda og heilbrigt
félagslíf félaganna, þótt það sé í sjálfu sér mikilvægt atriði. Hann er
að fylgjast með þörfum samfélagsins og finna leiðir til að fullnægja
þeim, annað hvort með eigin átaki eða í samvinnu við aðra aðila, og er
sérstök áhersla lögð á líknar-, mannúðar- og menningarmál. Lionsklúbbar
eru því heppilegur og áhrifaríkur vettvangur fyrir fólk sem vill í
sameiningu vinna að ákveðnum málefnum.
Meðal
sameiginlegra verkefna Lionshreyfingarinnar á Íslandi má m. a. nefna: Medic
Alert, unglingaskipti, vímuvarnir-Lions Quest, sjónvernd, Orkester
Norden o. fl.
Lions Clubs
International er stærsta alþjóðlega þjónustuhreyfing heims, stofnuð í
Bandaríkjunum árið 1917. Hún starfar í um 205 þjóðlöndum og er fjöldi
félaga um 1,3 milljónir karla og kvenna.
Ísland er fjölumdæmi (MD
109) sem skiptist í tvö umdæmi, 109-A og 109-B. Í A-umdæmi eru 50
Lionsklúbbar, 3 klúbbadeildir og 1 Lionessuklúbbur. Í B-umdæmi eru 39
Lionsklúbbar og ein klúbbadeild. Um 2400 manns starfa í þessum klúbbum.
Í Lions vinna konur og
karlar saman að ýmsum verkefnum til góðs fyrir mannkyn allt. Hugsjónir
Lionsmanna eru óheftar af landamærum.
Í Lions vinnur fólk, ungir
og aldnir, að þjóðþrifamálum á sínu svæði og sameiginlega á
alþjóðavettvangi.
Í Lions myndast
farvegur umræðna sem efla og þroska félagana.
Saga Lionshreyfingarinnar
Upphafið
Alþjóðasamband Lionsklúbba var formlega stofnað í Chicago í Bandaríkjunum 7.
júní 1917. Stofnandi hreyfingarinnar var kaupsýslumaðurinn Melvin Jones. Strax á
fyrsta Alþjóðaþingi Lionshreyfingarinnar sem haldið var þetta sama ár í Dallas
voru mættir 800 fulltrúar frá 23 Lionsklúbbum, svo að snemma hafa Alþjóðaþingin
verið fjölmenn.

Melvin Jones, stofnandi Lionshreyfingarinnar
Tilgangur með stofnun Lionsklúbbanna var að mynda samtök, sem eru óháð
stjórnmálaflokkum og trúmálafélögum, og inna af hendi ýmiss konar þjónustu á
sviði líknar- og mannúðarmála um leið og þau efla félagsanda og heilbrigt
félagslíf. Lionsklúbbur er því heppilegur og áhrifaríkur vettvangur fyrir
sameiginleg átök manna, hvort sem er í þjóðlegu starfi eða alþjóðlegu.

Alþjóðaskrifstofa
Lions í Oak Brook í Illinois
Sá
einstaki atburður sem einna hæst ber í sögu Lionshreyfingarinnar var árið 1925
er Helen Keller ávarpaði félaga á Lionsþingi í Cedar Point, Ohio í
Bandaríkjunum. Þar skoraði hún á Lionsmenn að gerast "riddara hinna blindu í
krossförinni gegn myrkrinu". Lionsmenn tóku þeirri áskorun sem hefur haft ómæld
áhrif á skuldbindingar og störf félaganna.
Hreyfingin óx hratt fyrstu árin og árið 1927 var fjöldi Lionsklúbba orðinn 1810
og fjöldi félaga 61.000. Þannig hefur hreyfingin vaxið og dafnað og orðið æ
traustari með hverju árinu sem liðið hefur. Undanfarin ár hefur klúbbunum
fjölgað svo ört, að nýr klúbbur er stofnaður á degi hverjum. Er nú svo komið að
það eru starfandi Lionsklúbbar í flestum þjóðlöndum heims.
Lions á Íslandi
Það var ekki fyrr en eftir lok síðari heimstyrjaldarinnar að hreyfingin
festi rætur í Evrópu er fyrsti klúbburinn var stofnaður í Stokkhólmi í
mars 1948. Fyrsti klúbburinn hér á landi, Lionsklúbbur Reykjavíkur, var
stofnaður 14. ágúst 1951. Lengst af var Lionshreyfingin aðeins fyrir
karla og var það ekki fyrr en 1979 að fyrsti Lionessuklúbbur var
stofnaður hér á landi. Í fyrstu var litið á Lionessuklúbbana sem
verkefni frá Lionsklúbbum og var það ekki fyrr 1987 að konur gátu orðið
fullgildir Lionsfélagar. Hefur það orðið til þess að flestir
Lionessuklúbbar hér á landi hafa breyst í Lionsklúbba.
Íslandi er skipt í 2 Lionsumdæmi: A suður-
og austurland; B vestur
og norðurland. Í A-umdæmi eru 8 svæði og í B-umdæmi eru 5 svæði. Á
hverju svæði eru 4-10 klúbbar. Allt landi tilheyrir síðan einu
fjölumdæmi.