|
|
Markmið Lionsklúbba
- Að vekja og efla anda
skilnings meðal þjóða heims.
- Að efla meginreglur heilbrigðs
stjórnarfars og borgaralegra dyggða.
- Að starfa af áhuga að aukinni
velferð byggðarlagsins og á sviði félagsmála, menningar og
almenns siðgæðis.
- Að tengja klúbbana böndum
vináttu, góðs félagsanda og gagnkvæms skilnings.
- Að skapa vettvang fyrir
frjálsar umræður um öll málefni, sem almenning varðar, að því
undanskildu að ekki séu rædd meðal klúbbfélaga málefni
stjórnmálaflokka né heldur sértrúarhópa.
- Að hvetja félagslynda menn og
konur til að þjóna byggðalagi sínu án persónulegs ávinnings og
hvetja til dugnaðar og eflingar siðgæðis í viðskiptum, iðnaði,
opinberri starfsemi og einkarekstri.
|
Siðareglur Lionsmanna
- Líttu á starf þitt sem köllun.
Leystu það svo af hendi að þú ávinnir þér traust.
- Leitastu við að gera starf
þitt árangursríkt. Áskildu þér hæfilega umbun erfiðis þíns, en
reyndu ekki að hagnast með óréttmætum hætti.
- Láttu ekki ávinning þinn verða
á annarra kostnað.
- Vertu hollur meðbræðrum þínum
og heiðarlegur gagnvart sjálfum þér.
- Vertu aldrei eigingjarn. Leiki
vafi á réttmæti gerða þinna, breyttu þá við náunga þinn eins
og þú vilt að hann breyti við þig.
- Gerðu vináttu að markmiði,
ekki leið að marki. Sönn vinátta krefst einskis í eigin þágu
og má aldrei vera háð gagnkvæmum greiða.
- Ræktu samfélagsskyldur þínar.
Vertu hollur þegn þjóðar og sveitarfélags bæði í orði og
verki.
- Hjálpaðu meðbræðrum þínum í
vanda. Þeir sem um sárt eiga að binda þurfa hluttekningu,
bágstaddir og minnimáttar stuðning.
- Vertu gætinn í gagnrýni og
örlátur á viðurkenningu. Byggðu upp, en rífðu ekki niður.
|
Lög fjölumdæmis og reglur sjóða
Allar upplýsingar um lög fjölumdæmis og reglur helstu sjóða má fá
á Word formi með því að smella hér.
|