Lionsklúbburinn Eik var stofnaður 18. febrúar 1988. Stofnfélagar voru
50.
Föðurklúbbur er Lionsklúbbur Garðabæjar.
Fyrstu stjórn klúbbsins skipuðu: Laufey Jóhannsdóttir, formaður,
Guðbjörg Stephensen, ritari
Sólveig Hannam, gjaldkeri
Allir félagarnir í Lkl. Eik
voru áður félagar í Lionessuklúbbnum Eik, en á fundi í desember 1987 var
ákveðið að breyta formi lionessuklúbbsins í lionsklúbb. Var þetta gert í
ljósi þeirra lagabreytinga sem samþykktar voru á Alþjóðaþingi Lions sem
haldið var á Tapei 1987. Með þeim breytingum öðluðust konur tækifæri að
gerast fullgildir lionsfélagar.
Lionessuklúbburinn Eik var
stofnaður 17. apríl 1985. Stofnfélagar voru 50.
Fyrstu stjórn skipuðu: Lilja Hallgrímsdóttir, formaður
Gíslína Kristjánsdóttir, ritari
Ásgerður Höskuldsdóttir,
gjaldkeri.
Lionessuklúbburinn Eik var
meðstofnandi að Lionessuklúbbnum Kaldá í Hafnarfirði árið 1986.
Lkl. Eik hefur ávallt reynt
að afla tekna til líknarsjóðs með öflugri starfsemi og klúbbfélagar m.a.
selt áskrift að tímaritum, gefið út og selt litabækur um brunavarnarátak
ætlað börnum, tekið að sér lokahreinsun á nýrri Flugstöð Leifs
Eiríkssonar, á nýju hóteli Holiday Inn, íbúðum Búseta, íbúðum eldri
borgara í Garðabæ og við Hrafnistu í Hafnarfirði, auk ýmissa smærri
verkefna.
Fundartímar:
Klúbbfundir 3. þriðjudag í mánuði sept./maí,
að jafnaði haldnir í Garðabergi á Garðatorgi og hefjast kl. 18:00.
Stjórnarfundir haldnir 2. miðvikudag í mánuði í Lionsheimilinu í
Kirkjuhvoli í Vídalínskirkju í Garðabæ og hefjast kl. 20.
Heimilisfang: Sími: 565 7299 (formaður)
Pósthólf 266
210 Garðabæ