Lionsklúbburinn Eik


Garðabæ

Heimasíða

 


Ýmsar síður

 

Lions International (2280 bytes)
LCIF
LionNet (2290 bytes)
 

Klúbbar á netinu

    Lkl. Agla
    Lkl. Akureyrar
    Lkl. Álftaness
    Lkl. Ásbjörn
    Lkl. Bolungarvíkur
    Lkl. Borgarness

    Lkl. Eik
    Lkl. Fjörgyn
    Lkl. Húsavíkur
    Lkl. Kaldá
    Lkl. Keilir
    Lkl.
Kópavogs
    Lkl. Mosfellsbæjar
    Lkl. Múli
    Lkl. Njarðvíkur
    Lkl. Njörður 
    Lkl. Patreksfjarðar 
   
Lkl. Rán
    Lkl. Seyðisfjarðar
    Lkl. Siglufjarðar
    Lkl. Skyggnir
    Lkl. Stykkishólms
    Lkl. Týr
    Lkl. Váli
    Lkl. Þór
    Lkl. Æsa

 


Velkomin á heimasíðu Lionsklúbbsins Eikar

Á heimasíðu Lionsklúbbsins Eikar má finna ýmsar upplýsingar um klúbbinn og starf hans.    
Meðal annars má finna upplýsingar um stjórn og nefndir, félagatal, starfsáætlun vetrarins og fleira.

Fundarstaður klúbbsins er:
 Garðaberg, Garðalundi 7
Pósthólf 266
212 Garðabæ

Klúbbfundir eru að jafnaði þriðja þriðjudag í mánuði og hefst kl. 19:00


Stjórn klúbbsins 2007 - 2008
Formaður: Laufey Jóhannsdóttir
Ritari: Erna Aradóttir
Gjaldkeri: Guðbjörg Stephensen
Siðameistari: Ruth Alfreðsdóttir
Stallari: Ásbjörg P. Elíasen


Mið 1. apr. 2008
Lionsklúbburinn Eik - fréttakorn.


Í lok febrúar fóru félagar í Lionsklúbbnum Eik í heimsókn að hjúkrunarheimilinu Holtsbúð.  Sú hefð hefur skapast að fara helst tvisvar á vetri í heimsók í Holtsbúðina.
Við bjóðum heimilisfólkinu upp á kaffi og eitthvað gott meðlæti.  Við höfum verið svo lánsamar að fá píanóleikarann góða Pálmar Ólason með okkur í þessar heimsóknir.
Það hefur ríkt kátína og gleði við söng og hljóðfæraleikinn.  Heimilisfólkið hefur tekið hressilega undir í söngnum og margar ljúfar minningar komið upp í hugann við að heyra tónistina.
Það er ákaflega gefandi að fá tækifæri til þess að koma í Holtsbúðina og eyða dagparti með heimilisfólkinu þar sem er okkur þakklátt fyrir komuna.

Fundurinn í mars var í höndum varastjórnar og stýrði Magnea varaformaður fundinum af lipurð og léttleika.  Við fengum góðan fyrirlesara á fundinn en það var Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur sem fjallaði um megrunarlausa daginn í maí á ári hverju.  Efnið fjallaði um átröskun og áhrf hennar á líðan fólks, sérstaklega ungs fólks.  Fyrirlesturinn var mjög áhugaverður og vakti margar spurningar og miklar umræður spunnust á eftir. 
Magna las svo upp úr annálabókinni, einstaka frásögn af Íranskri stúlku Ryan sem hún kynntist í Bandaríkjunum sl. vetur.  Var frásögn hennar leiftrandi skemmtileg og lifandi.
Félaganefnd kynnti varastjórn og bar fram tillögu um nýjan félaga.  Með þessum nýja félaga hafa þá þrjár konur bæst í hópinn í vetur og er það afar ánægjulegt fá þær til liðs við Lkl Eik.

Næsti fundur er svo ferðalag ekki alveg út í bláinn.
 Fyrirhugað er að fara í skoðunarferð í Garðinn og skoða Byggðasafnið í Garðinum en það er í Garðskagavita.
Á eftir ætlum við svo að borða í veitingastaðnum Flösinni og njóta þess að vera saman á vorkvöldi á Suðurnesjum.

Framundan er svo að selja Rauða Fjöður sem mun örugglega ganga vel enda er málefnið sem safnað er fyrir þarft og gott, þ.e. söfnun fyrir fylgdarhundum til handa blindum.
 



Mán. 25. feb. 2008
Það var annasamur en ánægjuríkur dagur í dag í Lionsklúbbnum Eik 24. febrúar


Kvennamessa í Vídalínskirkju.
Lionsklúbbarnir í Garðabæ hafa um langt árabil verið með það verkefni að sjá um að laga súpu að aflokinni messu fyrir sóknarnefnd Garðasóknar.
Messurnar eru auglýstar sérstaklega og hefur þetta verið skemmtilegt verkefni fyrir Lionsklúbbana og ljúft að vinna.
Í gær var Konudagurinn og súpa og brauð í boði sóknarnefndar í safnaðarheimilinu í Vídalínskirkju.

Mjög margar okkar mættu í messuna  og / eða í vinnu við að undirbúa hádegisverðinn. Það var líf og fjör að laga hádegisverð og taka saman aftur en gestir sem snæddu hádegisverð voru ríflega 220 manns.

Nýr Lionsklúbbur - Concordia.
Sama dag var svo stofnfundur í Lionsklúbbnum Concordia sem við erum stofnendur að. Lionsklúbburinn Eik hefur tekið að sér að vera móðurklúbbuinn þeirra. Félagarnir eru af pólskum ættum en búsett á Íslandi.  Það var mikil gleði og tilhlökkun í Pólverjunum okkar, þau eru með fullt af hugmyndum um verkefni bæði hér á landi sem í Póllandi. Það verður ánægjuríkt að fylgja þeim eftir og aðstoða þau við að móta starfið sitt hér á landi.
Líklegur dagur fyrir stofnskrárhátíðina þeirra er síðasti vetrardagur 23. apríl en nánar um það síðar.
Guðrún Yngvadóttir varaumdæmisstjóri og Lilja Hallgrímsdóttir sem tekið hefur að sér að vera Leiðaljónið fyrir Concordiu eiga mikið lof skilið fyrir framúrskarandi starf við stofnun klúbbsins.

Í heimsókn í Holtsbúð.
27. febrúar ætlum við að vera í  Hjúkrunarheimilinu Holtsbúð.
Við bjóðum heimilisfólkinu í eftirmiðdagskaffi, komum með eitthvað heimagert góðgæti og spilum svo af fingrum fram eitthvað skemmtiefni.
Þetta er verkefni sem mælist mjög vel fyrir og er ánægjulegt að vinna að.  Heimilisfólk og starfsfólk tekur okkur Lionskonum opnum örmum og eigum við saman notalega samverustund.

Það hafa bæst tveir nýir félagar í Lionsklúbbinn Eik og fleiri sem eru að koma til liðs við klúbbinn.  Það er einstaklega gaman að fá nýja félaga sem er tilbúnir að leggja lið.

Lionsklúbburinn Eik heldur upp á 20 ár sem fullgildur lionsklúbbur um þessar mundir. Hátiðarfundur þessu tengdur var 19. febrúar að Garðaholti. Félagarnir buðu með sér gestum og áttum við saman skemmtilega stund.



Fös. 15. feb. 2008
Gestafundur 19. febrúar næstkomandi

Næsti fundur Lionsklúbbsins Eikar verður þriðjudaginn 19. febrúar og hefst kl. 19.00.

Fundarstaðurinn er Garðaholt sem er vel við hæfi á afmælisfundi.
Við í stjórninni höfum undirbúið þennan fund og langar að hafa hann hátíðlegan
Þetta er gestafundur og hvetjum við ykkur til þess að taka með ykkur gesti: Maka, börn, vinkonur eða einhvern ykkur kæran.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi;
        Fundur settur kl. 19.00
        Fundargerð síðasta fundar og póstur.
        Matarhlé.
        Inntaka nýrra félaga og viðurkenningar.
                Tónlistaratriði, Hjörleifur Valsson fiðluleikari.
                Sögustund - Eikarrevía
        Fjöldasöngur og léttmeti.
Vinsamlegast látið vita um þátttöku og fjölda gesta til Guðrúnar Össurard. í veitinganefndinni eða Guðbjargar Ólafar.

Hlökkum til þess að eiga saman notalega Lionsstund á Garðaholti.

Stjórn Lkl Eikar.
Laufey Jóhannsdóttir.


19. sept. 2007
Fréttir frá fyrsta fundi starfsársins 2007-8.

Við hittumst kátar og hressar að afloknu ljúfu sumarleyfi. Það voru  fagnaðarfundir og faðmlög sem klingdu um salinn í Garðabergi þar sem fundurinn var haldinn. Við erum búnar að eiga samveru í Lionsklúbbnum Eik í á þriðja áratug og vinarþel er einkennandi fyrir starfið okkar.

Kínverskt þema var í matinn og skreytingarnar með kínversku ívafi. Kunnum við vel að meta það sem fram var borið.
Fordrykkur var í boði formannsins og svo buðu þær sem eru í veitinganefndinni upp á ostaköku í eftirrétt svo það var sannkölluð veisla hjá okkur.

Við höfum valið að hafa mannrækt og mannúð í forgrunni þetta árið og láta það vera yfirskriftina á starfinu í vetur.
Eitt af gildum Lionshreyfingarinnar er mannrækt og fer vel saman með því sem við störfum að í Eik.
Klúbburinn okkar  er framsækinn og vísa ég til upphafsáranna en byggjum á gömlum gildum.

Í daglegu starfi okkar er virðing, vöxtur, viska og víðsýni höfð að leiðarljósi.
Okkur langar í vetur að reyna á gleði, hugmyndaauðgi, frumkvæði,sveigjanleika og velvilja til þess að láta okkur líða vel saman um leið og við látum gott af okkur leiða.

Á fundinum voru reikningar ársins samþykktir sem og voru kynntar fréttir og farið mjög stuttlega yfir póst.
Okkur langar í vetur að kalla til skemmtilega fyrirlesara um áhugaverð efni líðandi stundar og hafa fundina hnitmiðaða, líflega en samt ekki of langa.

Fyrirlesari á fundinum var Gunnar Einarsson og flutti hann okkur fróðleik um lífið í Garðabæ. Fór yfir það sem bærinn er að vinna að í skipulags- skóla- umhverfis- og menningarmálum.  Hann fór jafnframt yfir það helsta sem framundan er í uppbyggingunni í bænum. Nýjan miðbæ og þróun hans sem og Hönnunarsafn Íslands í Garðabæ ásamt mörgu öðrum um Garðabæ sem gaman var að hlusta á.
Gunnari voru þökkuð orðin með góðu lófataki og fékk hann svo fána klúbbsins í kveðjurskini.

 

Í október er fyrirhugað að heimsækja Hönnunarsafn Íslands, geymslurýmið og fá fyrirlestur frá forstöðumanni safnsins um safnið og hönnun á Íslandi. Fundurinn er  fyrirhugaður 16. október.

Í lokin áttum við svo saman notalegt kaffispjall á léttum nótum um lífið og tilveruna.

                                                  Laufey Jóhannsdóttir, formaður.


Boðað til fundar í Ferða- útivistar og skógarnefndar kl. 19:45 þann 12. febrúar 2007 hjá Erlu að Strandvegi 12, Garðbæ

 Mættar:
Erla, Erna, Guðbjörg, Kristín
Ræddar voru tillögur um ferð í apríl og var samþykkt tillaga sem Kristín lagði fram.
Farið verður í Borgarnes að skoða Landnámssetrið en þar eru tvær sýningar í gangi
og hægt að skoða báðar ef vill. Skoðuð voru matartilboð hjá Hamri, húsi Golffélagsins í Borgarnesi og hjá Landnámssetrinu og ákveðið var að taka tilboði hins síðarnefnda.


13. maí 2007
Símafundur í Ferða- útivistar og skógarnefnd vegna hreinsunarferðar í Smalaholt
Erna, Guðbjörg, Kristín, Erla

 Ákveðið að tilkynna ferð í Smalaholt á síðasta fundi Eikar þriðjudag 15. maí að fengnu samþykki formanns Eikar.
Formaður Ferðanefndar sagði nefndarkonum að búið væri að bera olíu á borðið en þar naut hún fulltyngis maka síns einn kaldan en sólríkan maímorgun. Eftir er að setja upp skiltið og stendur til að þeir heiðursmenn Ásmundur og Hilmar taki það að sér sem fyrr, en sá fyrrnefndi á heiðurinn af smíðinni á þessu fallega skilti og hefur séð um viðhald á  því gegnum árin.
Ákveðið að boða konur í Smalaholtið fimmtudag 31. maí 2007 og rætt við Hjördísi, formann Eikar um þá tímasetningu. Einnig tekin ákvörðun um kaffi og meðlæti.

 Erla S. Lúðvíksdóttir


Lionsklúbburinn Eik

Ferð í Landnámssetrið í Borgarnesi föstudag 27. apríl 2007

 

Lagt var upp frá Flataskóla um kl. 18:30 með rútu frá Guðmundi Jónassyni. Kröftugi kjarninn í  ferðanefndinni var þá búinn að ljúka innheimtustörfum en einn farþegi enn ókominn. Þegar slegið var á þráðinn kom í ljós að sú hafði í önnum dagsins gleymt  ferðinni og var lagt af stað við svo búið.

Það fór vel um fólkið í rútunni enda snérist veitinganefndin í kringum farþegana af  þjónustulund sem hver barþjónn hefði mátt vera stoltur af.

Var nú ekið sem leið lá gegnum Mosfellsbæ, en ekki stansað við Áslák eins og fyrst var inni í myndinni, enda búið að ákveða að geyma það til betri tíma.

Aksturinn til Borganess tók um einn tíma. Haldið var áfram gegnum bæinní átt að Brákarey og að Landnámssetrinu. Þar var margt um manninn enda þrjár sýningar í gangi sem voru Egilssaga, Landnám Íslands og leiksýning.

Við höfðum valið Egilssögu en þegar til kom var okkur boðið að sjá Landnám Íslands í kaupbætir og var boðið þegið með þökkum.

Við mynduðum  fljótlega tvo hópa á sitt hvora sýninguna og fengu allir heyrnartól til að hlusta á söguna um leið og farið er í gegnum sýninguna.

Fólkinu var hleypt inn með ákveðnu millibili svo ekki myndaðist þröng en sýningaratriðin eru í tölusettri röð og því auðvelt að fylgja söguþræðinum. Voru þetta sérstæð ferðir gegnum söguna og samhljóma álit allra að þetta væru afar áhugaverðar sýningar og mikilli hugkvæmni verið beitt við gerð þeirra.

Að sýningum loknum var sest að snæðingi og fram borin súpa og kjötréttur sem hvort tveggja bragðaðist mjög vel. Kaffi á eftir. Einhverjir pöntuðu sér heldur fisk.

Kjartan Ragnarsson, leikari sem rekur Landnámssetrið ásamt Sigríði konu sinni var nú kallaður í salinn af Magnúsi Stephensen sem færði honum gamla ljósmynd úr skátastarfi þeirra félaga. Var myndin frá einhverri leiksýningu sem þeir tóku þátt í ásamt fleiri ungum mönnum og voru þeir allir í kjólum, en með þeim á myndinni var Emelía Jónasdóttur leikkona. Var auðséð að Kjartan hafði gaman af.

Skömmu seinna var farið að tygja sig til heimferðar sem gekk fljótt og vel og öllum skilað heilum og ánægðum heim í Garðabæ.

Erla S. Lúðvíksdóttir
 formaður ferða- útivistar- og skógarnefndar


Í Álftanesskóla í ársbyrjun 2007

                        Í skólanum á Álftanesi starfið dável gengur
                        af sjálfsaga og sjálfsstjórn uppeldinu fylgt
                        og skipperinn og aðrir stjórar efast ekki lengur
                        að skútan stefni í rétta átt og eftir henni siglt.

                        Þar ritarinn hún Magga er ríkum kostum búin
                        rokna skjót að störfum og virðist aldrei þreytt
                        í ljósritun og símsvörun á sama tíma frúin
                        svo snögg að sumir halda hún geri aldrei neitt.

                        Í bókasafni skólans er býsna mörgu að sinna
                        bækur fylla hillur og börnin stóla og borð
                        í tug af bókum, tímaritum ýmislegt má finna
                        og talsvert margir kjósa þar við Jónu að eiga orð.

En þar er Jóna að störfum stóran part úr degi
            að skóla loknum almenningssafnið tekur við
            þar sitja vaktir hún og Magga, en um báðar segi
            að starfsfólk betra enginn gæti kosið sér við hlið.
 

                                                                                               Es

Lag:

Ef hjá henni mömmu einn 5-eyring ég fengi

 


30. maí  2007
Guðrún Björt Yngvadóttir kjörin varaumdæmisstjóri

Guðrún Björt Yngvadóttir, Lkl. Eik var kjörin varaumdæmisstjóri umdæmis 109 A starfsárið 2007 - 2008.  Nánari upplýsingar um Guðrúnu má finna á sérstakri fréttasíðu með því að smella á "Klúbbfréttir" hér fyrir ofan


30. maí  2007
Konur 20 ár innan Lionshreyfingarinnar

Í ár eru 20 ár síðan konur urðu fullgildir meðlimir Lionshreyfingarinnar.  Af því tilefni var gefið út sérstakt Lionsblað tileinkað konum.  Í blaðinu birtist viðtal við Laufeyju Jóhannsdóttur, Lkl. Eik en hún var fyrst kvennat til að gegna embætti fjölumdæmisstjóra í heiminum.  Greinina má lesa á síðunni "Klúbbfréttir".


30. maí  2007
Sight First -
TILLAGA samþykkt á fundi 17. apríl
Stjórn Eikar, Sight First nefndin
og verkefnanefndin; leggja til að Lionsklúbburinn Eik leggi Sight First II verkefninu lið á eftirfarandi hátt;
Framlagið verði næstu 5 árin 1.000 USD á ári og veiti tilnefningu til MJ félaga.
   2007, 1.000 USD
   2008, 1.000 USD
   2009, 1.000 USD
   2010, 1.000 USD
   2011, 1.000 USD
Klúbburinn hefur nú þegar lagt 1.000 USD, sem samanstendur af gjöf Lilju Hallgrímsd, söfnunarfé úr Ljóninu á fundum. (veitir rétt til einnar MJ tilnefningar)

Með tillögunni  mun Lionsklúbburinn Eik samtals greiða 6.000 USD til Sight First II verkefnisins

 

                                                                    Síðan uppfærð 07. apríl 2008

Lionsklúbburinn Eik - Garðabergi, Garðalundi 7, Pósthólf 266     212 Garðabæ