Stofnfundur var haldinn 25. febrúar 1986 og voru stofnfélagar fjörutíu og
átta. Af þeim eru tuttugu og þrjár ennþá starfandi í klúbbnum.
Föðurklúbbur er Lionsklúbburinn Ásbjörn. Tengiliður klúbbsins og
meðstofnandi var Lionessuklúbburinn Eik, Garðabæ. Fyrstu stjórn Kaldár
skipuðu: Ásta Úlfarsdóttir sem var formaður, Lillý Jónsson, ritari og
Jórunn Jörundsdóttir, gjaldkeri. Starfaði sú stjórn frá febrúar 1986 til
maíloka 1987.
Það má til gamans geta þess að fimm mæðgur voru meðal stofnfélaga í
klúbbnum.
Stofnskrárhátíðin var haldin 24. maí 1986, sérlega glæsileg hátíð. Við
áttum okkur leyndarmál í klúbbnum og þar afsannaðist hið fornkveðna að
allir viti þá tvær vita, en leyndarmálið var fáninn okkar.
Á þessari hátíð var fáninn afhentur og var það í fyrsta skipti sem fáni
var afhentur á stofnskrárhátíð klúbbs. Við vorum og eru ákaflega stoltar
af fánanum. Það voru þær Elísabet Karlsdóttir og Guðrún Bjarnadóttir sem
hönnuðu og sáu um alla framkvæmd við gerð hans. Nokkrar úr okkar hópi
hafa starfað í umdæmisstjórnum og fjölumdæmisráði.
25. febrúar 1992 var Kaldá breytt í Lionsklúbb og voru stofnfélagar þá
fimmtíu og tveir. Þá vorum við orðnar sjálfstæður klúbbur en ekki
verkefni hjá Lkl. Ásbirni.
Fjórar konur hafa verið gerðar að Melvin Jones félögum.
Vímuvarnardagurinn hefur verið haldinn hér í Hafnarfirði á vegum allra
Lionsklúbbanna við góðan orðstír síðan 1986.
Ýmislegt höfum við gert á öllum þessum árum bæði til gagns og gamans. Svo
eitthvað sé nefnt þá spilum við bingó á Hrafnistu einu sinni í mánuði í
samstarfi við Lkl. Ásbjörn. Við höfum skúrað, skrúbbað, bónað, tínt
birkifræ og selt allt mögulegt, t. d. uppskriftabækurnar Kaldárrétti,
páskaegg, konfekt, penna, að ógleymdum okkar vinsælu jólakortum. Bara
nefna það, við höfum selt það. Við vorum djarfar og hressar og skelltum
okkur í að vera með bílahappdrætti sem gekk mjög vel.
Við höfum styrkt marga á þessum árum sem of langt væri að telja upp. Þá
höfum við gefið tæki og tól á sjúkrastofnanir. Bæði klúbburinn einn og í
samvinnu við klúbbana á svæði 6 höfum við styrkt sambýli í Hafnarfirði með
ýmsu móti. Við erum allar félagar í Íþróttafélaginu Firði, sem
íþróttafélag fatlaðra.
Góða gesti höfum við fengið í gegnum tíðina á fundi, bæði með fræðslu- og
skemmtiefni.
Við skemmtum okkur líka vel, t. d. á glæsilegum hattafundi í desember, se
er sérstaklega vandað til hverju sinni. Vorferðalagið er fastur liður.
Kaldárkonur hafa farið á ýmis námskeið t. d. um framsögn, ræðumennsku,
fundasköp, þjóðbúningasaum og dansnámskeið.