Klúbbfréttir
Jólakortasala Lkl. Kaldár
Lkl
Kaldá í hafnarfirði er að hefja sína árlegu jólakortasölu og mun allur
ágóði renna til líknarmála. Erla Sigurðardóttir myndlistarkona teiknaði
kortið. Kortin eru seld 5 í pakka ásamt umslögum og kostar hver pakki kr
500.-. Einnig er hægt að fá kort án texta.
Kortin verða til sölu á Hargreiðslustofu Guðrúna, Linnetstíg 6,
Hafnarfirði og í Gullsmiðjunni, Lækjargötu 34c, Hafnarfirði.
Nánari upplýsingar gefur Ásta Úlfarsdóttir í síma 555 3702.
Svæðisstjóri
Jóhanna Valdemarsdóttir var kjörin svæðisstjóri á svæði 6 í umdæmi 109A
starfsárið 2007 – 2008.
1. svæðisfundur var haldinn 1. október í Haukahúsinu, Hafnarfirði.
Kristinn Hannesson, SightFirstII verkefnastjóri, kom á fundinn og sagði
frá stöðu Campaign SightFirst II átakinu og Jón Gröndal, kynningarstjóri,
kynnti verkefnið Göngum gegn sykursýki.
Næsti svæðisfundur verður 21. nóvember í Haukahúsinu.
Sjónverndarátakið
Lionshreyfingin á Íslandi er þátttakandi í alþjóðaverkefni Lions, Campaign
SightFirst II. Í apríl s.l. var ákveðið á klúbbfundi að greiða til þessa
verkefnis $16.000.- á næstu tveimur árum. Þar með er klúbburinn orðinn
módelklúbbur innan hreyfingarinnar.

Klúbbfundir
1. fundur
vetrarins var haldinn í Skútunni 11. september. Þar kynnti Ólafía Lára
Ágústsdóttir hönnun sína á fatnaði og skartgripum.
Á 2. fundi
vetrarins 16. október pökkuðum við jólakortunum. Á þeim fundi var ákveðið
að gefa Hrafnistu í Hafnarfirði æfingahjól.
25. október
var 1. bingó vetrarins á Hrafnistu í Hafnarfirði. Bingóin eru sameiginlegt
verkefni Lkl. Ásbjarnar og Lkl. Kaldár.
3. fundur
klúbbsins verður þriðjudaginn 20. nóvember. Það verður sameiginlegur
fundur með Lkl. Eik í Garðabæ.
Nánari
upplýsingar um fundi sjá vetrarstarf.