Svæðishátíð Lionsmanna á svæði 4 á Hótel Örk

Rögnvaldur Pálmason Svæðisstjóri setur hátíðina. Ljósmynd: Vilmundur Kristjánsson.
Rögnvaldur Pálmason Svæðisstjóri setur hátíðina. Ljósmynd: Vilmundur Kristjánsson.

Svæðishátíð Lionsmanna á svæði 4 fór fram á Hótel Örk 9. apríl síðastliðinn og tókst afar vel. Lionsklúbbar á svæði 4 eru orðnir 10 talsins; Lkl. Hveragerðis, Lkl. Þorlákshafnar, Lkl. Selfoss, Lkl. Emblur, Lkl. Vestmannaeyja, Lkl. Geysir, Lkl. Laugardals, Lkl.  Skjaldbreiður, og Lkl. Dynkur og Lkl. Eden sem er nýjustu klúbbarnir.

Það var Rögnvaldur Pálmason Svæðisstjóri sem stóð fyrir hátíðinni.

Fulltrúar klúbbanna kynntu störf sinna klúbba og sumir fóru með gamanmál. Heiðursgestur fundarins og aðalræðumaður kvöldsins var Halldór Einarsson (Henson) og Jón Pálmason Umdæmisstjóri heiðraði hátíðna með nærveru sinni. Emblukórinn kom fram og söng tvö lög. Þá var matast saman. Að lokum tók hljómsveitin Halógen við og lék fyrir dansi fram á nótt.