Lionsklúbburinn Fjölnir færði Neistanum, styrktarfélagi hjartveikra barna, 10 milljóna króna peningagjöf.

Þórir Jenssen formaður Lionsklúbbsins Fjölnis afhendir Elínu Eiríksdóttur formanni Neistans gjöfina.
Þórir Jenssen formaður Lionsklúbbsins Fjölnis afhendir Elínu Eiríksdóttur formanni Neistans gjöfina.
Lionsklúbburinn Fjölnir færði Neistanum, styrktarfélagi hjartveikra barna, 10 milljóna króna peningagjöf. Það er hæsti styrkur sem íslenskur Lionsklúbbur hefur veitt einum og sama aðilanum. 
 

Árlega fæðast um 70 börn með hjartagalla hér á landi, eða 1,7% allra barna sem fæðast. Neistinn, styrktarfélag hjartveikra barna, styrkir árlega fjölda fjölskyldna sem þurfa að fara með börn í hjartaaðgerðir erlendis. Lionsklúbburinn Fjölnir hóf söfnun fyrir Neistann vorið 2016 með sölu á DVD diski um ferðalag keisaramörgæsanna.  

Þórir Jensen, formaður Lionsklúbbsins Fjölnis, segist ánægður að geta stutt Neistann. „Já, þetta hefur verið talið mjög gott málefni. Þetta er erfitt hjá öllum sem lenda í þessu að eiga fyrir þeim útlagða kostnaði sem fólk þarf að bera til að fara með börnin sín í svona aðgerðir,“ segir Þórir. 

Allur ágóði söfnunarinnar rennur til Neistans, eða um tíu milljónir króna, sem er hæsti styrkur sem íslenskur Lionsklúbbur hefur veitt einum aðila. Elín Eiríksdóttir, formaður Neistans segir styrkinn afar kærkominn. „Já það hjálpar rosalega mikið, að létta undir þegar fólk verður fyrir vinnutapi, að þurfa ekki að hafa fjárhagsáhyggjur ofan í það,“ segir Elín.

Og Elín þekkir af eigin raun hvað Neistinn skiptir miklu máli, en fjölskyldan hefur þrisvar farið með son hennar til Svíþjóðar í opna hjartaaðgerð. „Þannig að það hefur hjálpað okkur fjölskyldunni mjög mikið að hafa styrktarsjóðinn á bak við okkur,“ segir Elín.