Leiðtogaskólinn hefst 11. febrúar Ert þú búin(n) að bóka þig?

Leiðtogaskólinn hefst 11. febrúar   Ert þú búin(n) að bóka þig?

Leiðtogaskóli Lions (Regional Lions Leadership Institute) haldinn helgarnar 11. og 12. febrúar og 11. og 12. mars næstkomandi og verður haldinn á Hótel Sögu.

Leiðtogaskólinn er opinn öllum Lionsfélögum og er til dæmis frábær undirbúningur fyrir verðandi formann, ritara eða gjaldkera klúbbsins þíns.

Þátttökugjald er aðeins 30.000 krónur og innifelur það hádegisverð alla dagana og kvöldverð tvo laugardaga, skemmtikvöld og öll námsgögn (í möppu) sem þátttakendur fá til eignar auk viðurkenningarskírteinis.

 Frestur til að skrá sig er til 31. janúar en minnum á að þeir sem fyrstir panta hafa forgang að þeim takmarkaða fjölda sæta sem við  höfum til ráðstöfunar.

Til þess að bóka sig, eða fá nánari upplýsingar, má senda tölvupóst á lions@lions.is eða halldor@tv.is. Vinsamlega gefðu upp nafn, kennitölu, síma og netfang ásamt heiti klúbbs.