Guðmundur Ingimundarson, Lkl. Borgarness fær Kjaransorðuna

Björg Bára Halldórsdóttir, Umdæmisstjóri 109B, Guðmundur Ingimundarson og Björn Jóhannsson, varaform…
Björg Bára Halldórsdóttir, Umdæmisstjóri 109B, Guðmundur Ingimundarson og Björn Jóhannsson, varaformaður Lionsklúbbs Borgarness

Kjaransorða Lionshreyfingarinnar var afhent á afmælishátíð lionsklúbbanna í Borgarnesi sem haldin var í Hjálmakletti 8. apríl s.l.  Lionsklúbbur Borgarness hélt upp á 60 ára afmæli sitt og Lionsklúbburinn Agla upp á 30 ára afmæli sitt.  Guðmundur hefur starfað óslitið í Lionsklúbbi Borgarness í 60 ár eða frá stofnun hans.  Þá blésu klúbbarnir til stórrar afmælisveislu og buðu íbúum héraðsins til veislu.  Það var Björg Bára Halldórsdóttir, Umdæmisstjóri umdæmis 109B sem afhenti Guðmundi orðuna.