Dregið í happdrætti Lionsklúbbanna í Ólafsvík

Björn Hilmarsson Lkl. Ólafsvíkur afhendir Halldóri Sigurjónssyni formanni Bjsv.Lífsbjargar einnar mi…
Björn Hilmarsson Lkl. Ólafsvíkur afhendir Halldóri Sigurjónssyni formanni Bjsv.Lífsbjargar einnar milljón kr. styrk. Með þeim á mynd er Þórey Úlfarsdóttir Lkl. Rán og meðstjórnendur Lífsbjargar, Hafrún, Patrik og Ægir Þór.
Ljósm.Sóley Jónsdóttir.

Lionsklúbbarnir í Ólafsvík, Lkl. Ólafsvíkur og Lkl. Rán, stóðu fyrir happdrætti til styrktar Björgunvarsveitinni Lifsbjörg í Snæfellsbæ.  Dregið var í Félagsheimilinu Klifi á aðfangadag og styrkurinn afhentur. Lkl.Ólafsvíkur hefur í áratugi dregið í leikfanga happdrætti sínu á aðfangadags morgun fyrir fullu félagsheimili og stytt þannig biðina fyrir fjöldann allan af ungum Snæfellsbæingum.

Hér neðar má sjá vinningsnúmerin:

1. Hyundai I10 Comfort - 1211
2. 49" Sony sjónvarp - 50
3. Lenov...o fartölva - 1875
4. IPhone 7 - 35
5. Ferðavinningur til Alicante með Heimsferðum - 509
6. Bose heimabíó Cinematic 15 - 520
7. IPad air 2 - 312
8. Vetrargisting f. 2 með 3rétta kvöldverði á Hótel Búðum - 1538
9. Bose SoundlinkII hátalari - 107
10. Gisting f. 2 með morgunverði á Hótel Berg, Keflavík - 893
11. Canon Pixma 5750 prentari - 132

Þórey Úlfarsdóttir Lkl.Rán afhendir heppnum vinningshöfum Antoni og Jasoni lykla af nýjum Hyundai.
Ljósm.Sóley Jónsdóttir.

Dregið var í happdrættinu á skrifstofu sýslumanns í Stykkishólmi og það sýnt í beinni í félagsheimilinu. Jóhannes Ólafsson dregur út vinninga.